Höfðu aðeins 90 sekúndur til þess að heilla gesti

Jón Orri Sigurðarson og Sara Björk Hauksdóttir, stofnendur Guyde.
Jón Orri Sigurðarson og Sara Björk Hauksdóttir, stofnendur Guyde. Ljósmynd/Eygló Gísla

Margt var um manninn í Grósku hugmyndahúsi í vikunni þegar ýmsir hagaðilar úr ferðaþjónustu auk fjárfesta og frumkvöðla komu saman á hádegisviðburðinum Tourism Talks.

Startup Tourism er viðskiptahraðall fyrir sprotafyrirtæki í ferðaþjónustu á vegum KLAK – Icelandic Startups sem er í gangi um þessar mundir og var viðburðurinn hluti af dagskrá hans.

Þemað á viðburðinum var nýsköpun í ferðaþjónustu og til að veita viðstöddum hvetjandi innblástur í þeim efnum fluttu Eva María Lange, stofnandi Pink Iceland, og Dóróthea Ármann, rekstrarstjóri Vínstofu Friðheima, erindi um þær leiðir sem þær hafa farið á undanförnum árum til þess að ná frábærum árangri með hugmyndir sínar í ferðaþjónustu á Íslandi.

Eva María Lange, stofnandi Pink Iceland.
Eva María Lange, stofnandi Pink Iceland. Ljósmynd/Eygló Gísla

Rúsínan í pylsuendanum voru svo lyfturæður þeirra níu teyma sem taka nú þátt í Startup Tourism. Frumkvöðlarnir stigu á svið einn af öðrum og höfðu aðeins 90 sekúndur til þess að heilla gesti upp úr skónum með viðskiptahugmyndum sínum.

Að lokum gafst fólki svo tími til að njóta léttra veitinga, sýna sig og sjá aðra og efla þannig tengslanet sitt og njóta stundarinnar.

Bakhjarlar Startup Tourism eru Berjaya Iceland Hotels, Icelandair, N1, Icelandia, Menningar- og viðskiptaráðuneytið og Faxaflóahafnir sf, auk þess sem Íslenski ferðaklasinn og Íslandsstofa koma að verkefninu sem samstarfsaðilar.

Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri …
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Ferðaklasans. Ljósmynd/Eygló Gísla
Gerard Siles og Hafþór Hafþór Helgi Sigmarsson, stofnendur Nord Temp.
Gerard Siles og Hafþór Hafþór Helgi Sigmarsson, stofnendur Nord Temp. Ljósmynd/Eygló Gísla
Lijing Zhou og Vicente Carro, stofnendur Snorta Sustainability.
Lijing Zhou og Vicente Carro, stofnendur Snorta Sustainability. Ljósmynd/Eygló Gísla
Sara Djörk Hauksdóttir, meðstofnandi Guyde.
Sara Djörk Hauksdóttir, meðstofnandi Guyde. Ljósmynd/Eygló Gísla
Sveinbjörn Traustason og Davíð Örn Ingimarsson, stofnendur Iceland Cover.
Sveinbjörn Traustason og Davíð Örn Ingimarsson, stofnendur Iceland Cover. Ljósmynd/Eygló Gísla
Kolfinna Kristínardóttir og Ísey Dísa Hávarsdóttir verkefnastjórar Startup Tourism.
Kolfinna Kristínardóttir og Ísey Dísa Hávarsdóttir verkefnastjórar Startup Tourism. Ljósmynd/Eygló Gísla
Dóróthea Ármann, rekstrarstjóri Vínstofu Friðheima.
Dóróthea Ármann, rekstrarstjóri Vínstofu Friðheima. Ljósmynd/Eygló Gísla
Ísey Dísa Hávarsdóttir, verkefnastjóri KLAK.
Ísey Dísa Hávarsdóttir, verkefnastjóri KLAK. Ljósmynd/Eygló Gísla
Breki Guðmundsson og Magnús Pétur Lýðsson.
Breki Guðmundsson og Magnús Pétur Lýðsson. Ljósmynd/Eygló Gísla
Eyjólfur Guðmundsson, stofnandi True Arctic Travel.
Eyjólfur Guðmundsson, stofnandi True Arctic Travel. Ljósmynd/Eygló Gísla
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda