Á dögunum fagnaði íslenska húðvörumerkið, Chito Care Beauty, merkilegum áfanga í íslenskri nýsköpun þegar fyrirtækið opnaði sína fyrstu húð- og fegurðar lækningastofu í Lundúnum. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt fyrirtæki opnar sína eigin stofu í Bretlandi.
Sigríður Vigfúsdóttir framkvæmdastjóri Chito Care Beauty kynnti vöruna fyrir erlendum blaðamönnum sem komu frá Vogue og Tatler svo einhverjir séu nefndir. Þar voru líka áhrifavaldar og viðskiptafólk. Sendiherra Íslands í Lundúnum, Sturla Sigurjónsson, mætti í boðið sem fram fór á húð- og fegurðarstofunni við Harley Street. Boðið var upp á kampavín og veitingar sem minntu á íslenska náttúru.
Fegurðar lækningastofan er staðsett við hina virtu Harley Street en í götunni eru aðallega læknastofur af ýmsu tagi, allt frá tannlæknum upp í lýtalækna.
Var áður hjá Selfridges
Chito Care Beauty opnaði stofuna í samstarfi við The Aska Group sem rekin er af íslenska lögfræðingnum, Aldísi Kristínu Firman Árnadóttur sem hefur verið búsett í Lundúnum í 20 ár en með henni í fyrirtækinu er Giorgiana Cardos, sem er þekkt í fegrunarbransa Lundúnaborgar. Hún var áður innkaupastjóri hjá Selfridges og framkvæmdastjóri hjá MAC svo einhver stórfyrirtæki á snyrtivöruheiminum séu nefnd.
Chito Care Beauty tilheyrir Primex Iceland, sem nýtir lækningamátt kítósans, sem er unnið með sjálfbærum hætti úr rækjuskel sem veidd er í Norður-Atlantshafi. Nýja stofan býður upp á húðmeðferðir sem sameina þetta öfluga efni með hátæknibúnaði til að tryggja að rakinn fari djúpt ofan í húðina og veiti meiri frískleika.
Robert Montague PR sérfræðingur, Sigríður Vigfúsdóttir framkvæmdastjóri Chito Care Beauty og Sturla Sigurjónsson sendiherra Íslands í Lundúnum.
Ljósmynd/Tina Miguel
Aldís Kristín Firman Árnadóttir og Giorgiana Cardos hjá The Aska Gropup.
Ljósmynd/Tina Miguel
Karolina Ahmed húðlækningasérfræðingur hjá Chito Care Beauty Clinic London og Sigríður Vigfúsdóttir framkvæmdastjóri Chito Care Beauty.
Ljósmynd/Tina Miguel
Giorgiana Cardos framkvæmdastjóri The Aska Group og Sebastian Valencia, verslunarstjóri Roja í Selfridges.
Ljósmynd/Tina Miguel
Karolina Ahmed er hér fyrir miðri mynd.
Ljósmynd/Tina Miguel
Shahrzad Asgari rekstrarstjóri VON Beauty Selfridges, Karolina Ahmed, Corina Barsa, yfirmaður sjálfbærra verkefna Barclays Corporate.
Ljósmynd/Tina Miguel
Aldís Kristín Firman Árnadóttir og Sigríður Vigfúsdóttir.
Ljósmynd/Tina Miguel
Laufey Lúðvíksdóttir, Elísabet Rúnarsdóttir og Aldís Kristín Firman Árnadóttir.
Ljósmynd/Tina Miguel
Veenu Hooja Philanthropist, Andrada Popa áhrifavaldur í snyrtivörum og Brand Ambassador og Diana Man samfélags- og samstarfsstjóri The Aska Group.
Ljósmynd/Tina Miguel
Laufey Lúðvíksdóttir, Sigríður Vigfúsdóttir og Elísabet Rúnarsdóttir.
Ljósmynd/Tina Miguel
Leoni Lai, Chantelle Pang og Olympia Pipelia, Brand Ambassadors og áhrifavaldar í snyrtivörum.
Ljósmynd/Tina Miguel
Sigríður Vigfúsdóttir kynnti Chito Care Beauty fyrir gestum.
Ljósmynd/Tina Miguel
Robert Montague RR sérfræðingur og Sturla Sigurjónsson, sendiherra Íslands.
Ljósmynd/Tina Miguel
Diana Man samfélags- og samstarfsstjóri The Aska Group.
Ljósmynd/Tina Miguel
Aldís Kristín Firman Árnadóttir, Sigríður Vigfúsdóttir og Sturla Sigurjónsson sendiherra Íslands í Lundúnum.
Ljósmynd/Tina Miguel
Denisa Moise Brand Ambassador og áhrifavaldurinn Anastasios Lamproppoulos.
Ljósmynd/Tina Miguel
Íris Arna Jóhannsdóttir hjá Kviku banka er hér fyrir miðri ljósmynd.
Ljósmynd/Tina Miguel
Karolina Ahmed, aðal húðlækningasérfræðingur Chito Care Beauty Clinic London útskýrði húðmeðferðirnar.
Ljósmynd/Tina Miguel
Sigríður Vigfúsdóttir og Giorgiana Cardos.
Ljósmynd/Tina Miguel
Hér má sjá vatnsmelónu með fetaosti, létt súrsaðri agúrku og rauðlaukssnúningi.
Ljósmynd/Tina Miguel