Róbert Wessman og Guðmundur Fertram tóku við viðurkenningum

Mikill fjöldi var mættur á vinnustofu Kjarval.
Mikill fjöldi var mættur á vinnustofu Kjarval. Samsett mynd

Stofnendur og forstjórar tveggja fyrirtækja sem teljast til svokallaðra einhyrninga tóku í gær við Geisla, sérstakri viðurkenningu Samtaka iðnaðarins, fyrir ómetanlegt framlag til íslensks atvinnulífs og verðmætasköpunar í landinu.

Það voru þeir Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, og Róbert Wessmann, stofnandi og forstjóri Alvotech, sem veittu viðurkenningunum mótttöku. Með þeim vilja Samtök iðnaðarins varpa ljósi á mikilvægi hugverkaiðnaðarins fyrir hagkerfið, hlutdeild greinarinnar í útflutningstekjum þjóðarbúsins og nauðsyn þess að fyrirtæki í greininni geti áfram vaxið.   

Í viðskiptalífinu er einhyrningur einkarekið sprotafyrirtæki sem metið er á milljarð bandaríkjadala eða meira fyrir skráningu á markað. Hugtakið er eignað áhættufjárfestinum Aileen Lee, sem notaði það fyrst í blaðagrein árið 2013 og vildi með tilvísun í hina goðsagnakenndu veru undirstrika fágæti þess að sprotafyrirtæki yrðu svo verðmæt. Einhyrningshugtakið varð fljótt þekkt um allan heim og eftirsóttur áfangi meðal frumkvöðla. 

Róbert Wessman, stofnandi og forstjóri Alvotech, og Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, tóku við viðurkenningunum úr hendi framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, Sigurði Hannessyni. Hvort fyrirtæki um sig fékk afhent til eignar viðurkenningargripinn Geisla sem er einstakt listaverk eftir myndhöggvarann Matthías Rúnar Sigurðsson. Gripurinn sem unnin er úr hvítum marmara er með listrænum tilvísunum í seiglu, snerpu og frumkvöðlaanda. Hann táknar afrek og hugrekki í viðskiptum, þar sem þrautseigja og nýsköpun hafa leitt til þess að fyrirtækið hefur náð árangri. Gripurinn er smíðaður úr hágæða efni, með sléttu, straumlínulöguðu yfirborði sem fangar ljósið á dularfullan og kraftmikinn hátt. Línur listaverksins vísa í hraða og stefnufestu, líkt og fyrirtækin sjálf sem hafa skarað fram úr með því að ná alþjóðlegri stöðu einhyrnings

Fida Abu Libdeh, Sigríður Margrét Oddsdóttir og Margrét Kristín Sigurðardóttir.
Fida Abu Libdeh, Sigríður Margrét Oddsdóttir og Margrét Kristín Sigurðardóttir. Ljósmynd/BIG
Sigtryggur Magnason og Svandís Dóra Einarsdóttir.
Sigtryggur Magnason og Svandís Dóra Einarsdóttir. Ljósmynd/BIG
Þrúður Óskarsdóttir og Jelena Ohm ásamt fleirum.
Þrúður Óskarsdóttir og Jelena Ohm ásamt fleirum. Ljósmynd/BIG
Margt var um manninn á viðburðinum.
Margt var um manninn á viðburðinum. Ljósmynd/BIG
Þessir voru í góðu stuði.
Þessir voru í góðu stuði. Ljósmynd/BIG
Sigurður Helgi Birgisson og Magnús Þór Gylfason.
Sigurður Helgi Birgisson og Magnús Þór Gylfason. Ljósmynd/BIG
Björg Ásta Þórðardóttir og Hjörtur Sigurðsson.
Björg Ásta Þórðardóttir og Hjörtur Sigurðsson. Ljósmynd/BIG
Sigríður Hjálmarsdóttir, Halldór Halldórsson og Diljá Mist Einarsdóttir.
Sigríður Hjálmarsdóttir, Halldór Halldórsson og Diljá Mist Einarsdóttir. Ljósmynd/BIG
Sigtryggur Magnason og Konráð S. Guðjónsson.
Sigtryggur Magnason og Konráð S. Guðjónsson. Ljósmynd/BIG
Starfsfólk Kerecis.
Starfsfólk Kerecis. Ljósmynd/BIG
Erla Tinna Stefánsdóttir og Inga E. Eiríksdóttir.
Erla Tinna Stefánsdóttir og Inga E. Eiríksdóttir. Ljósmynd/BIG
Sigríður Mogensen og Guðmundur Óskarsson.
Sigríður Mogensen og Guðmundur Óskarsson. Ljósmynd/BIG
Þórarinn Hjartarson, María Rut Kristinsdóttir, Sigurður Helgi Bragason og Ísak …
Þórarinn Hjartarson, María Rut Kristinsdóttir, Sigurður Helgi Bragason og Ísak Einar Rúnarsson. Ljósmynd/BIG
Páll Ásgeir Guðmundsson, Guðmundur Óskarsson og Sigtryggur Magnason.
Páll Ásgeir Guðmundsson, Guðmundur Óskarsson og Sigtryggur Magnason. Ljósmynd/BIG
Sigurður Hannesson, Jónína Guðmundsdóttir og Tanya Zharov.
Sigurður Hannesson, Jónína Guðmundsdóttir og Tanya Zharov. Ljósmynd/BIG
Róbert Wessman og Guðmundur Fertram Sigurjónsson.
Róbert Wessman og Guðmundur Fertram Sigurjónsson. Ljósmynd/BIG
Ellen María Bergsveinsdóttir, Auður Friðriksdóttir og Ingvar Hjálmarsson.
Ellen María Bergsveinsdóttir, Auður Friðriksdóttir og Ingvar Hjálmarsson. Ljósmynd/BIG
Mikil stemning var á svæðinu.
Mikil stemning var á svæðinu. Ljósmynd/BIG
Sigríður Hjálmarsdóttir, Bergþór Ólafsson, Gunnar Zoega og Guðlaugur Þór Þórðarson.
Sigríður Hjálmarsdóttir, Bergþór Ólafsson, Gunnar Zoega og Guðlaugur Þór Þórðarson. Ljósmynd/BIG
Bryndís Alexandersdóttir og Eva Lind.
Bryndís Alexandersdóttir og Eva Lind. Ljósmynd/BIG
Lárus M.K. Ólafsson, Berglind Guðjónsdóttir, Þorgils Helgason og Guðný Hjaltadóttir.
Lárus M.K. Ólafsson, Berglind Guðjónsdóttir, Þorgils Helgason og Guðný Hjaltadóttir. Ljósmynd/BIG
Jón Páll Leifsson og Þórarinn Hjartarson.
Jón Páll Leifsson og Þórarinn Hjartarson. Ljósmynd/BIG
Sigríður Hjálmarsdóttir, Ingólfur Bender, Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir og Halldór Halldórsson.
Sigríður Hjálmarsdóttir, Ingólfur Bender, Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir og Halldór Halldórsson. Ljósmynd/BIG
Jóhanna Klara Stefánsdóttir og Edda Bergmann.
Jóhanna Klara Stefánsdóttir og Edda Bergmann. Ljósmynd/BIG
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda