Yerma eftir Simon Stone var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Ekki var þverfótað fyrir spariklæddum gestum sem brostu sínu breiðasta. Á meðal gesta var fegurðardrottningin Manuela Ósk Harðardóttir sem var í fylgd með ömmu sinni, Jóhönnu Norðfjörð. Þar var líka Hilmir Snær Guðnason en kærasta hans, Vala Kristín Eiríksdóttir, fer með hlutverk í sýningunni.
Nína Dögg Filippusdóttir leikur aðalhlutverkið í Yermu sem er leikstýrt af eiginmanni hennar, Gísla Erni Garðarssyni. Með önnur hlutverk fara Björn Thors, Guðjón Davíð Karlsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
Börkur Jónsson gerði leikmyndina og Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir búninga. Trommuleikarinn Gulli Briem sér um tónlistarstjórn og er hans innkoma í verkinu áhrifarík en með honum á sviðinu eru Snorri Sigurðsson sem spilar á trompet og flugelhorn og Valdimar Olgeirsson sem spilar á bassa og barintóngítar.
Júlía Margrét Einarsdóttir rithöfundur þýddi verkið og var hún á frumsýningunni ásamt systur sinni, Kamillu Einarsdóttur rithöfundi. Á frumsýningunni var líka Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir í flauelsjakkafötum ásamt eiginkonu sinni, Kristínu Ólafsdóttur framleiðanda sem skar sig úr í vel sniðinni gulldragt. Viðskiptahjónin Birgir Bieltvedt og Eygló Björk Kjartansdóttir voru prúðbúin og líka Selma Björnsdóttir söngkona og Kolbeinn Tumi Daðason fréttastjóri á Vísi.
Þar var líka Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri Alþingis og eiginmaður hennar Magnús Jón Björnsson tannlæknir - bæði eins og klippt út úr tískublaði!