Steinunn Ása hélt innblásið ávarp við opnun frönsku kvikmyndahátíðarinnar

Steinunn Ása Þorvaldsdóttir sjónvarpskona og Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á …
Steinunn Ása Þorvaldsdóttir sjónvarpskona og Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi, sem einnig lék lítið hlutverk í þáttunum Vigdís á RÚV. Ljósmynd/Patrik Ontkovic

Þann 17. janúar var opnun frönsku kvikmyndahátíðarinnar haldin með pompi og prakt. Í ár á hátíðin 25 ára afmæli og opnunarmyndin, A Little Something Extra eða Un p’tit truc en plus, skorar á áhorfandann að endurhugsa hvað þýðir að vera „öðruvísi“.

Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, sjónvarpskona og talsmaður um réttindi fatlaðs fólks, hélt djúpa ræðu um mikilvægi fjölbreytni í kvikmyndum og hvernig opnunarmyndin ýtir undir að áhorfandinn líti öðrum augum á lífið og tilveruna. Tala Steinunnar var í takt við söguþráð kvikmyndarinnar sem m.a. tekst á við málefni fatlaðs fólks út frá einstöku sjónarhorni.

Opnunarmyndin hefur verið gríðarlega vinsæl í heimalandinu, Frakklandi. Hún var á toppnum í átta vikur samfleytt með yfir 7,3 milljónir áhorfenda.

Fjölmargir voru staddir við opnunina sem haldin var í Bíó Paradís en þess má geta að franska kvikmyndahátíðin er sú elsta sem haldin er á Íslandi. Frönsk kvikmyndahátíð fer fram dagana 17.-26. janúar í Bíó Paradís í samstarfi við Franska sendiráðið á Íslandi og Alliance Francaise.

Hrönn Sveinsdóttir, Helga Bryndís Jónsdóttir og Niels Thibaud Girerd.
Hrönn Sveinsdóttir, Helga Bryndís Jónsdóttir og Niels Thibaud Girerd. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Grace Achieng, Steinunn Ása Þorvaldsdóttir og Aleksandra Nycz.
Grace Achieng, Steinunn Ása Þorvaldsdóttir og Aleksandra Nycz. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands, hélt tölu.
Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands, hélt tölu. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Helgi Már Björgvinsson, yfirmaður alþjóðasamskipta hjá Icelandair og Patrick Le …
Helgi Már Björgvinsson, yfirmaður alþjóðasamskipta hjá Icelandair og Patrick Le Menes sendiráðunautur. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradís í líflegu spjalli við gesti.
Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradís í líflegu spjalli við gesti. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Kim Minkyiung, Grace Achieng, Aleksandra Nycz, Milan Chang og Alexandre …
Kim Minkyiung, Grace Achieng, Aleksandra Nycz, Milan Chang og Alexandre Labruffe. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Ásthildur Kjartansdóttir, Ari Alexander og Ester Bíbí Ásgeirsdóttir.
Ásthildur Kjartansdóttir, Ari Alexander og Ester Bíbí Ásgeirsdóttir. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Ása Steinunn Þorvaldsdóttir, Gillaume Bazard og Hrönn Sveinsdóttir.
Ása Steinunn Þorvaldsdóttir, Gillaume Bazard og Hrönn Sveinsdóttir. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Franska sendiráðið bauð upp á léttar veitingar í lok sýningar.
Franska sendiráðið bauð upp á léttar veitingar í lok sýningar. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Mikið var rætt að lokinni sýningu.
Mikið var rætt að lokinni sýningu. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Fullt hús og góð stemning á opnun hátíðarinnar.
Fullt hús og góð stemning á opnun hátíðarinnar. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Sendiherra Frakklands, Guillaume Bazard, ásamt vinkonu sinni og Guðlaugu Matthildi …
Sendiherra Frakklands, Guillaume Bazard, ásamt vinkonu sinni og Guðlaugu Matthildi Jakobsdóttur (t.h.), fyrrum forseta Alliance Francaise. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Gunnar Snorri Gunnarsson, fyrrum sendiherra og forseti Alliance Francaise, hélt …
Gunnar Snorri Gunnarsson, fyrrum sendiherra og forseti Alliance Francaise, hélt einnig ræðu. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Gunnur Martinsdóttir Schluter kvikmyndaleikstjóri ásamt vini sínum.
Gunnur Martinsdóttir Schluter kvikmyndaleikstjóri ásamt vini sínum. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Steinunn Ása náði salnum með magnaðri ræðu.
Steinunn Ása náði salnum með magnaðri ræðu. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Anna Róshildur Böving, Renaud Duville og Alexandre Labruffe.
Anna Róshildur Böving, Renaud Duville og Alexandre Labruffe. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
Salurinn var fullur af fólki.
Salurinn var fullur af fólki. Ljósmynd/Patrik Ontkovic
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda