Sumargleði Hoobla og Advise fór fram í Sjávarklasanum á dögunum og var fólk í miklu stuði.
Harpa Magnúsdóttir, stofnandi Hoobla, peppaði mannskapinn og kom þeim í sumarskap. Mikael Arnarson, framkvæmdastjóri Advise, kynnti til leiks Advise Business Monitor, sem auðveldar stjórnendum að greina reksturinn.
Meðal gesta voru Bogi Agnar Gunnarsson, Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, Sigrún Hallgrímsdóttir ásamt fleiri góðum gestum og gæddu þau sér á poppi og fljótandi veigum.
„Það er mjög gaman að eiga okkar sumargleði, þar sem við blásum okkur hvatningu og fróðleik í brjóst á sama tíma og við höfum gaman saman,“ sagði Harpa um sumargleðina.