Mikið fjölmenni var við opnun sýningarinnar Spegilmynd í Þulu, sem staðsett er í Marshall-húsinu, á dögunum.
Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir sýnir nýjustu röð verka sinna í sínum einstaka stíl á sýningunni. Málverk Áslaugar eru unnin þvert á miðla með efnum eins og fúgu, vatnslit, akrýl, kol, blýant, klippimynd og steinum.
Áslaug Íris lauk BA-prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2006. Árið 2009 lauk hún MFA-prófi frá School of Visual Arts í New York. Verk Áslaugar hafa verið sýnd á sýningum í söfnum og galleríum á Íslandi, í Evrópu og í Bandaríkjunum.
Sýningin stendur til 29. júní og hefur sýningin notið góðra undirtekta.