Fullnægingarlaus 36 ára kona spyr

Ragnheiður Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur.
Ragnheiður Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur. Ljósmynd/Gabrielle Motola

Ragn­heiður Ei­ríks­dótt­ir hjúkr­un­ar­fræðing­ur, eða Ragga Ei­ríks eins og hún er kölluð, held­ur úti vefn­um Ragga­ei­ríks.com. Hér er hún spurð að því, af 36 ára gam­alli konu, hvernig hún eigi eig­in­lega að fara að því að fá full­næg­ingu.

Hæ Ragga


Ég er með „smá­vægi­legt“ vanda­mál. Ég hef aldrei runkað mér og hef aldrei fengið full­næg­ingu. Ég hef prófað að leika við sjálfa mig en guggna alltaf, er feim­in við það. Finnst ég ekki kunna þetta og veit ekki hvað ég á að gera. Þar af leiðandi er þetta ennþá meiri smán. Hef rætt þetta við vin­kon­ur mín­ar. s.s um það hvernig maður eigi að runka sér, fæ eig­in­lega alltaf sömu svör­in. „Æi þúveist bara leika við þig…“

En hvernig leik ég við mig? Hvað get ég gert til þess að auka lík­urn­ar á því að ég fái full­næg­ingu? Jú runka mér, en hvernig geri ég það?

Það að „kunna“ ekki að leika  við mig finnst mér mjög skömm­ustu­legt og ég þori lítið að tala um þetta.

Ég er samt ekk­ert feim­in þegar á hólm­inn er komið með karl­manni, langt því frá. Hef prófað mjög margt hvað kyn­líf varðar.  S.s reyna að finna út hvað það er sem að get­ur hjálpað mér. En að rúnka mér hef ég ekki prófað eða klárað rétt­ara sagt. Get­urðu gefið mér ein­hver ráð?

Kæra 36 ára

Plís ekki skamm­ast þín eða vera vond við sjálfa þig út af þessu. Prófaðu að setja ein­hverja aðra konu sem þér þykir vænt um í þín spor og spáðu í til­finn­ing­ar þínar gagn­vart henni. Ég þori að veðja að þú mund­ir alls ekki hafa svona nei­kvætt viðhorf ef vand­inn væri ekki þinn.

Þá er spurn­ing­in hvort ég get hjálpað þér áleiðis í átt að full­næg­ingu…
Hér er og go­lít­ill fræðslu­fyr­ir­lest­ur frá kyn­lífs­ráðgjaf­an­um Trist­an Taormino. Byrjaðu á að lesa í gegn um hann - það er alltaf gott að skerpa aðeins á bók­legu þekk­ing­unni þó að verk­legi þátt­ur­inn sé lík­lega mik­il­væg­ari fyr­ir þig.

Næsta skref er dá­sam­leg­ur vef­ur Betty Dod­son og Carlin Ross. Þar eru litl­ir fyr­ir­lestr­ar og víd­eó og ógrynni af full­næg­ing­ar­hvatn­ingu fyr­ir kon­ur.

Svo þarftu að kaupa þér titr­ara. Titr­ari er gríðarlegt þarfaþing og get­ur hjálpað mikið. Hend­ur eru auðvitað dá­sam­leg nautnatól en stund­um þarf bara ör­lítið meiri kraft og hraða en fing­urn­ir ráða við. Titr­ari þreyt­ist ekki og hef­ur ekki húð sem soðnar í pík­usafa.

Hér eru svo nokk­ur Rögguráð sem eru tek­in úr vænt­an­legri bók minni sem ber vinnu­heitið Klof­vega­hand­bók­in:

  • Skipu­legðu stefnu­mót við sjálfa þig. Slökktu á sím­an­um og reyndu að búa þannig um hnúta að þú verðir ekki trufluð í klukku­tíma eða svo.
  • Notaðu hend­ur til að strjúka þér á stöðum sem örva þig kyn­ferðis­lega. Ef þú ert ekki viss hvaða staðir þetta eru skaltu strjúka þig um all­an lík­amann og upp­götva þína upp­á­haldsstaði. Staldraðu svo við staðina sem örva þig og veita þér vellíðan.
  • Mörg­um kon­um (og körl­um) finnst gott að nota ímynd­un­ar­aflið til að magna upp kyn­ferðis­lega örvun. Aðrir lesa eða horfa á eró­tískt efni í sama til­gangi. Finndu hvað fell­ur að þínum smekk – hvað kveik­ir í þér?
  • Þegar þú ert orðin kyn­ferðis­lega æst skaltu staldra við pík­una og sníp­inn og strjúka þig með fingr­um eða titr­ara eins og þér finnst best. Titr­ar­ar eru frá­bær­ir og ef þú átt ekki einn slík­an ráðlegg ég þér ein­dregið að ráða bót á því hið fyrsta.
  • Á meðan þessu stend­ur skaltu reyna að slaka á, anda djúpt og ró­lega og sleppa áhyggj­um af amstri hvers­dags­ins.

Ég vona sann­ar­lega að svarið mitt verði þér til inn­blást­urs og auk­inn­ar ham­ingju.
Bestu kveðjur,

Ragga

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda