Getum við orðið hamingjusöm?

Íslensk kona veltir því fyrir sér hvort hún sé í …
Íslensk kona veltir því fyrir sér hvort hún sé í draumasambandinu því kærastinn er svo afbrýðisamur. mbl.is/ThinkstockPhotos

Valdi­mar Þór Svavars­son, ráðgjafi hjá Lausn­inni, svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Nú er hann spurður út í það hvort hægt sé að lækna af­brýðisemi.

Sæll,

Ég er ný­bú­in ađ ná í draumaprins­inn. Viđ kynnt­umst á sam­skipta­neti fyr­ir ein­hleypt fólk og nú treyst­ir hann mér ekki. Tel­ur ađ ég sé ađ tala viđ ađra karl­menn, ađ ég sé međ röđ­ina á eft­ir mér (sem var en er ekki leng­ur) ég er búin ađ skrá mig út af öll­um deit­síđ­um. Hann er samt svo tor­trygg­inn og spyr enda­laust viđ hvern ég sé ađ tala. Hvar ég hafi ver­iđ og hvert ég sé ađ fara.

Ég er nú far­in ađ hugsa hvort þetta sé í raun draumaprins­inn? Tel­ur þú ađ ein­hver fram­tíđ sé í ađ viđ get­um orđiđ ham­ingju­söm? Er svona af­brýðisemi lækn­an­leg?

Kveðja, PP

Valdimar Þór Svavarsson, ráðgjafi hjá Lausninni.
Valdi­mar Þór Svavars­son, ráðgjafi hjá Lausn­inni. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Góðan dag­inn og takk fyr­ir að senda spurn­ing­una.

Það er ekk­ert óal­gengt að í upp­hafi sam­bands örli á óör­yggi en mik­il­vægt er að það taki ekki stjórn­ina. Í sam­bönd­um er mik­il­vægt að báðir aðilar geti vaxið og notið sín í líf­inu án þess að vera haldið niðri af ótta og óör­yggi maka.

Af­brýðisemi er vond og get­ur auðveld­lega leitt til mik­illa rang­hug­mynda sem valda viðkom­andi aðila mikl­um sál­ar­kvöl­um. Und­ir­rót af­brýðisem­inn­ar er ótti. Ótt­inn staf­ar af óör­yggi og und­ir­liggj­andi ótta um að verða yf­ir­gef­inn eða hafnað af ein­hverj­um sem okk­ur þykir vænt um. Þessi höfn­un­ar­ótti get­ur fram­kallað til­finn­ingu sem er mjög sárs­auka­full fyr­ir viðkom­andi. Einnig get­ur verið að ótt­inn stafi af því að ein­stak­ling­ar hafi sjálf­ir verið ótrygg­ir í para­sam­bandi og reikna þá með því að aðrir hljóti að vera það líka, þá er þeirra eig­in raun­veru­leiki að ýta und­ir þeirra eig­in van­líðan. Hver sem ástæða óör­ygg­is­ins er þá er hætt við að það birt­ist í ým­iss kon­ar erfiðleik­um í sam­skipt­um sem geta þró­ast út í and­legt of­beldi, þving­an­ir og jafn­vel lík­am­legt of­beldi.

Það er sann­ar­lega hægt að vinna með óör­yggi af þess­ari gerð og í grunn­inn snýst sú vinna um að efla sjálfs­traust og virðingu viðkoamdi aðila til þess að auka sjálf­stæði og ör­yggi í para­sam­bandi og líf­inu í heild. Það er hins veg­ar frumskil­yrði að aðil­inn sem er að upp­lifa óör­yggið vilji sjálf­ur vinna í mál­inu. Það er hægt að gera hjá ráðgjöf­um sem hafa þekk­ingu á slíkri vinnu og eins mæli ég með tíma hjá par­aráðgjafa þannig að þið getið bæði rætt mál­in frá ykk­ar hlið með þriðja aðila sem get­ur hjálpað ykk­ur í því sam­tali.

Hvað sem öðru líður hvet ég þig til að setja mörk á þessa hegðun þannig að hún þró­ist ekki út í að þú þurf­ir að sitja fyr­ir svör­um við spurn­ing­um sem spretta af óör­ygg­inu. Ef þú set­ur mörk á kær­leiks­rík­an máta og bend­ir maka þínum á að þetta sé eitt­hvað sem hann verði að vinna úr sjálf­ur, þá gæti það hjálpað hon­um að horf­ast í augu við vand­ann og um leið ert þú að sleppa tök­un­um og öðlast meira frelsi sjálf.

Gangi ykk­ur allt í hag­inn, 

Með bestu kveðju,

Valdi­mar Þór Svavars­son ráðgjafi

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Valdi­mari spurn­ingu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda