Ein ráðalaus með sinn fyrrverandi

Íslenskur karl er alltaf með vesen að sögn fyrrverandi konu …
Íslenskur karl er alltaf með vesen að sögn fyrrverandi konu hans. mbl.is/Thinkstockphotos

Valdi­mar Þór Svavars­son, ráðgjafi hjá Fyrsta skref­inu, svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hann spurn­ingu frá ís­lenskri konu sem er að gef­ast upp á barns­föður sín­um. 

Hæ Valdi­mar,

Fyrr­ver­andi maður­inn minn er alltaf að skipta um kær­ust­ur. Við eig­um börn og eru þau viku og viku hjá okk­ur til skipt­is. Sem er bara fínt nema hvað að hann er alltaf að biðja mig um að svissa vik­un­um og núna vill hann fara að breyta öllu í des­em­ber og ég er bara ekk­ert til í það. Ég veit að ef ég geri það ekki þá mun hann hegna mér fyr­ir það. Fá börn­in upp á móti mér.

Ég er kom­in á þann stað að meika ekki neitt vesen og þess vegna læt ég orðið allt eft­ir hon­um. En núna er mæl­ir­inn full­ur.

Kær kveðja, HG

 

Valdimar Þór Svavarsson, fyrirlesari og ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu.
Valdi­mar Þór Svavars­son, fyr­ir­les­ari og ráðgjafi hjá Fyrsta skref­inu.

 

Góðan dag­inn HG og takk fyr­ir þessa hug­leiðingu.

Ég skil vel að þú upp­lif­ir gremju yfir ástand­inu enda mjög vond staða að þurfa að haga lífi sínu eft­ir duttl­ung­um annarra vegna ótta við þeirra viðbrögð. Þetta er ekki óal­gengt þegar kem­ur að því að tak­ast á við verk­efn­in í kjöl­far skilnaða þar sem börn eru til staðar. Í raun er vand­inn fyrst og fremst sá að aðili eða aðilar eru ekki að virða mörk sem sett eru. Í þessu til­viki eru mörk­in varðandi um­gengni, að börn­in eiga að vera viku hjá þér og svo viku hjá þínum fyrr­ver­andi og báðir aðilar eiga að virða þessi mörk.

Eng­ar regl­ur eru í barna­vernd­ar­lög­um um hve mik­il um­gengni á að vera. Samn­ing­ar um um­gengni eru oft og tíðum munn­leg­ir en hægt er að gera skrif­leg­an samn­ing og fá hann staðfest­an hjá sýslu­manni. Þar með er kom­inn mögu­leiki til að fara í frek­ari aðgerðir ef samn­ing­ur­inn er ekki virt­ur. Í öllu falli ætti að hafa hag barn­anna að leiðarljósi og ósk­andi væri að all­ir hefðu mjög skýra sýn hvað það varðar. Því er ekki alltaf til að dreifa og því koma upp mál þar sem verið er að nota börn­in á ein­hvern hátt til þess að skapa spennu og ótta eins og þú ert að upp­lifa.

Hvað sem öðru líður þá þarft þú að vera við stjórn í þínu lífi. Það er mjög mik­il­vægt að setja skýr mörk í þess­um mál­um og halda sig við þau. Þú get­ur ekki stjórnað því hvað maður­inn þinn fyrr­ver­andi ger­ir og ef hann ákveður að gera eitt­hvað sem ekki get­ur tal­ist gott fyr­ir börn­in þá get­ur þú leitað leiða til að vernda þeirra hags­muni í fram­hald­inu. Ef þú stend­ur ekki við mörk­in sem þú set­ur, þá mun hann ekki virða þau. Það get­ur kostað tals­verða árekstra þegar verið er að setja mörk en oft­ar en ekki lær­ir fólk að virða mörk annarra á end­an­um. Þegar mörk eru sett er mik­il­vægt að ræða þau af yf­ir­veg­un í upp­hafi, út­skýra hver mörk­in eru og af hverju þau eru sett. Þá kem­ur það síður á óvart þegar reyn­ir á mörk­in og þú þarft að halda þeim. Það er hans ábyrgð að leysa þann tíma sem hann á að vera með börn­in. Það get­ur hann gert með því að sýna því virðingu og vera til staðar þegar þau eru hjá hon­um og ef það koma upp sér­stak­ar ástæður þá þarf hann ein­fald­lega að leita til aðila sem standa hon­um nærri og hægt er að treysta fyr­ir börn­un­um tíma­bundið á meðan hann þarf að sinna sínu, það er hluti af líf­inu. Þetta eru oft­ast nán­ir ætt­ingj­ar eða barnapí­ur sem geta hugsað vel um börn­in. Aðal­atriðið er að þú vit­ir að hverju þú geng­ur svo þú get­ir sjálf skipu­lagt þitt líf. Eins og áður sagði get­ur þú ekki stjórnað því hvað þinn fyrr­ver­andi ger­ir eða hvort hann fari niður á það plan að reyna að fá börn­in upp á móti þér. Með því að vera til staðar fyr­ir börn­in þín og sinna þeim á kær­leiks­rík­an hátt þegar þau eru hjá þér geta þau sjálf metið það hvað er rétt og rangt ef á það reyn­ir.

Gangi þér allt í hag­inn.

Með bestu kveðju,

Valdi­mar Þór Svavars­son ráðgjafi. 

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Valdi­mari Þór spurn­ingu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda