Hvers vegna þarf fyrrverandi að vera með?

Valdi­mar Þór Svavars­son ráðgjafi hjá Fyrsta skref­inu svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hann spurn­ingu frá konu sem er í sam­búð með manni. 

Sæll. 

Ég hef verið í sam­búð í nokk­ur ár með manni sem var áður gift­ur. Við eig­um bæði fyrr­ver­andi maka. Sam­býl­ismaður minn er í messa­ges-hóp með börn­um sín­um og fyrr­ver­andi eig­in­konu. Þar inná póst­ar hann mynd­um, öllu sem hon­um finnst merki­legt og þar á meðal ferðalög­um okk­ar inn­an­lands og utan. Mér finnst ekk­ert að því að börn­in hans fylg­ist með ferðum okk­ar og merkisat­b­urðum sem snerta okk­ur og svo öf­ugt en ég hef eng­an áhuga á því að fyrri eig­in­kona sé með allt á hreinu sem ger­ist í okk­ar lífi. Ég er ekki inni í þess­um hóp og mér stend­ur það ekki til boða, sé því aldrei neitt sem þarna fer á milli en veit af þessu í gegn­um aðra. Er þetta eitt­hvað sem ég á að sætta mig við eða hvað?

Kveðja, ein pirruð. 

Valdimar Þór Svavarsson.
Valdi­mar Þór Svavars­son. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

 

Góðan dag­inn og takk fyr­ir þessa ein­lægu spurn­ingu. Spurn­ing­in er ein­föld og svarið líka. Hvað finnst þér?

Það er svo al­gengt að við erum að velkj­ast með spurn­ing­ar við hinu og þessu og vit­um ekki hvaða svar er rétt. Ein­hvern tím­ann heyrði ég setn­ing­una, „If th­ere is a qu­esti­on, th­ere is no qu­esti­on“. Ég get ekki full­yrt að ég hafi rétt fyr­ir mér en minn skiln­ing­ur á setn­ing­unni þegar ég heyrði hana var að þegar við erum að velkj­ast í vafa um eitt­hvað sem við erum ekki al­veg sátt við, þá er það ekki nokk­ur spurn­ing, við ætt­um ekki að sætta okk­ur við það. Það er í það minnsta eðli­legt að þið ræðið þetta vel og þú út­skýr­ir þína hlið á mál­inu. Sjáðu hvort maki þinn skilji þína af­stöðu og sé til­bú­inn til að virða það við þig að annað hvort breyta þess­ari grúppu þannig að hún inni­haldi bara hann og börn­in hans, eða bæti þér inn á hana. Þið eruð sam­an í dag og sjálfsagt mál að þið deilið ekki ykk­ar per­sónu­legu stund­um með fyrr­ver­andi konu hans. Að sama skapi er sjálfsagt mál að hann geti óhindrað verið í góðum sam­skipt­um við börn­in sín og þau við hann.

Best er að börn­in í stjúp­fjöl­skyld­um finni fyr­ir ör­yggi og að for­eldr­ar þeirra geti átt gott sam­band, þrátt fyr­ir að vera skil­in. Það þarf bara stund­um að ræða það hvaða lína er eðli­leg og hversu mikið fyrr­um mak­ar eru inn í þeim sam­bönd­um sem verða til síðar. Mörg­um þykir best að hafa þau tengsl ekki meiri en það sem þarf til þess að sinna þörf­um barna og þeim sam­eig­in­legu ákvörðunum sem þarf að taka. Meiri sam­skipti en það geta auðveld­lega valdið erfiðleik­um, eins og lít­ur út fyr­ir að sé að ger­ast í þínu til­viki. Merki­lega oft kem­ur það fyr­ir að það eina sem vant­ar upp á til þess að leysa mál­in, er að ræða þau. Það er best að gera af yf­ir­veg­un og muna að þegar um sam­skipti er að ræða þar sem börn­in eiga í hlut, geta til­finn­ing­ar farið á flug og mik­il­vægt að aðgreina sam­skipti við börn­in frá öðrum sam­skipt­um þegar þetta er rætt.

Von­andi getið þið rætt mál­in og leyst þau á þenn­an ein­falda máta.

Með bestu kveðju,

Valdi­mar Þór Svavars­son, ráðgjafi hjá Fyrsta skref­inu. 

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Valdi­mar spurn­ingu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda