Hélt fram hjá og er nú að senda broskalla

Íslensk kona treystir ekki manninum sínum.
Íslensk kona treystir ekki manninum sínum. mbl.is/ThinkstockPhotos

Valdi­mar Þór Svavars­son, ráðgjafi hjá Fyrsta skref­inu, svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hann spurn­ingu frá konu sem er að reyna að vinna í hjóna­bandi sínu. 

Sæll Valdi­mar,

Ég er að reyna að vinna í sam­bandi mínu við eig­in­mann minn eft­ir fram­hjá­hald hans.  Við höf­um farið í ráðgjöf sem ég taldi vera gott en hann tel­ur ekki þörf á frek­ari vinnu með ráðgjafa sem ég er alls ekki sam­mála. Ég tek ákvörðun um að vinna í þessu sam­bandi en ég er enn ekki að treysta hon­um og að hann sé heiðarleg­ur í til­finn­ing­um sín­um bæði gagn­vart sjálf­um sér og mér. Hann hef­ur ekki sagt einn já­kvæðan hlut eða hrósað mér frá því hann viður­kenndi fram­hjá­haldið og við tók­um aft­ur sam­an þó svo að ég hafi sagt að ég þyrfti á því að halda.

Hann stund­ar áhuga­mál sem ég tek ekki þátt í (og mun ekki geta gert) sem tek­ur mik­inn tíma hjá hon­um. Ég fer stund­um að hugsa hvort hann sé að fara aft­ur á sömu braut sem myndi þýða að ég myndi skilja við hann. Ég komst að því að hann er mjög reglu­lega í sam­skipt­um við kven­mann sem er að æfa með hon­um, senda skila­boð og broskalla. Málið er að ég laumaðist inn á sam­skiptamiðil hans án þess að hann viti. Hvað skal gera?

Kveðja, SD

 

Valdimar Þór Svavarsson, fyrirlesari og ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu.
Valdi­mar Þór Svavars­son, fyr­ir­les­ari og ráðgjafi hjá Fyrsta skref­inu.

 

Góðan dag­inn og takk fyr­ir þessa fyr­ir­spurn.

Það má segja að fyrsta setn­ing­in hjá þér leggi svo­lítið lín­urn­ar varðandi það sem ég vil benda þér á í þessu máli. „Ég er að reyna að vinna í sam­bandi mínu við eig­in­mann minn...“ Maður vinn­ur ekki einn í tveggja manna verki.

Ef maður­inn þinn er ekki að vinna þessa vinnu með þér, er ekki að sýna það í verki að hann kunni að meta sam­bandið ykk­ar og er í óheiðarleg­um sam­skipt­um við aðra konu, þá mæli ég með því að þú skoðir þína stöðu af al­vöru. Af hverju ert þú að leggja á þig að byggja upp sam­band við aðila sem virðist ekki hafa áhuga á því? Ég geri mér grein fyr­ir því að ég hef aðeins hluta af sög­unni, ég veit til dæm­is ekki hvort þið eruð gift, eigið börn eða hvort aðrir þætt­ir hafa áhrif á að það sé þess virði að reyna að bæta sam­bandið. Það breyt­ir því samt ekki að ef aðili í para­sam­bandi er ekki til­bú­inn að sýna maka sín­um sjálf­sagða virðingu og traust, þá er það dýru verði keypt að viðhalda slíku sam­bandi. Það kem­ur illa niður á þinni eig­in sjálfs­virðingu, vek­ur upp ótta og hef­ur slæm­ar af­leiðing­ar að venj­ast því að þetta sé fram­koma sem hann kemst upp með og þú sætt­ir þig við.

Ég mæli með því að þú hug­leiðir vel hvað það er sem þú vilt. Skrifaðu niður hvaða línu þú vilt draga, hvar þú set­ur mörk­in og haltu þig við þau. Segðu maka þínum hvað þér finnst og hvað þú vilt og biddu hann um að segja þér ná­kvæm­lega hvað hann vill og hvað hon­um finnst. Ef þessi atriði passa ekki sam­an hjá ykk­ur þá þarftu að ákveða fyr­ir þig hvað þú vilt gera í sam­bandi við það. Viltu sætta þig við að fara hans leið eða standa með sjálfri þér og gera það sem þér þykir rétt, jafn­vel ef það þýðir að sam­band­inu ljúki? Ef þið eru sam­mála um hvað ykk­ur finnst og hvað þið viljið, þá er mik­il­vægt að halda tryggð við þau mörk sem sett eru og vera til­bú­in að taka ákv­arðanir ef þau eru brot­in. Þessi mörk gætu til dæm­is verið að fara í nokkra tíma til par­aráðgjafa, að það sé ekki verið að stunda óheiðarleg sam­skipti við annað fólk og að þið takið bæði frá tíma í hverri viku sem þið nýtið til þess að tala sam­an og byggja upp sam­bandið ykk­ar. Þá eru kom­in mæl­an­leg og tíma­sett mark­mið sem auðvelt er að sjá hvort það er vilji til að fylgja.

Von­andi hjálpa þess­ar hug­leiðing­ar þér eitt­hvað.

Með bestu kveðju, 

Valdi­mar Þór Svavars­son ráðgjafi. 

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Valdi­mari spurn­ingu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda