Kynntist kvæntum manni og leitar ráða

Valdi­mar Þór Svavars­son ráðgjafi hjá Fyrsta skref­inu svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hann spurn­ingu frá konu sem velt­ir því fyr­ir sér hvort hún sé með ást­arþrá? 

Sæll Valdi­mar.

Ég kynnt­ist manni en hann sagði mér ekki að hann væri í sam­bandi fyrr en við vor­um búin að sofa sam­an. Hann talaði um börn­in sín tvö eins og ekk­ert væri en minnt­ist ekki einu orði á barn­s­móður sína og kær­ustu. Ég hélt að það væri í virðing­ar­skyni við mig og hugsaði með mér að ég myndi spyrja hann kannski á þriðja stefnu­móti. Hélt að hún væri kannski dáin og hann væri svona dug­leg­ur, einn með börn­in. Mér gekk illa að hrista hann af mér jafn­vel eft­ir að hann sagði mér frá því að hann ætti kær­ustu. Ég varð svo ótrú­lega hrif­in svo fljótt. Var eig­in­lega al­veg í skýj­un­um. Svo hlustaði ég á hann segja mér alla sína sorg­ar­sögu. Sam­bandið hans var erfitt. Búið að vera erfitt lengi. Mér fannst það ekki koma mér við og bað hann um að hætta að tala um sam­bandið sitt við mig. Okk­ar sam­skipti ílengd­ust. Við höf­um þekkst í tæpa 8 mánuði. Hann sagðist elska mig. All­an þann tíma var hann enn þá með kær­ust­unni sinni í bilaða sam­band­inu. Sam­kvæmt hon­um sofa þau ekki sam­an leng­ur og eru bara sam­býl­ing­ar. Hann gat ekki bara hoppað burt frá skyld­um sín­um. Það á ég að skilja. Hversu lengi á ég að skilja? Hversu mikl­ar lík­ur eru á því að hann muni halda fram hjá mér líka? Og hversu mikl­ar lík­ur eru á því að hann muni nokk­urn tíma fara úr sínu sam­bandi?

Ég er ekki búin að vera í sam­skipt­um við hann í nokkr­ar vik­ur og er að reyna að slíta mig í burtu. All­ir sem ég hef talað við hafa sagt mér að hætta þessu en það er fá­rán­lega erfitt. Ég legg það alls ekki í vana minn að vera með lofuðum mönn­um en hann náði bara ein­hverju taki á mér. Er þetta merki um slæma sjálfs­virðingu? Hvernig grein­ir maður ást frá þrá­hyggju? Ég er búin að greina hann með per­sónu­leikarösk­un (ansi nars­iss­ísk­ur og mögu­lega sósí­ópati). Fyr­ir utan allt þetta þá er hann kyn­lífs­fík­ill. Frá­bær til­von­andi maki! Ég gæti ekki treyst hon­um en mér líður bara eins og ég gæti samt horft fram hjá öllu þessu. Eða breytt hon­um. Sjitt, hvað þetta er mik­il klisja eitt­hvað.

Er ást, al­vöru­ást, bara al­gjör blinda? Ég tel mig vera frek­ar klára konu. Eru það bara kon­ur með lága sjálfs­virðingu sem falla fyr­ir svona svik­ul­um gaur­um?

Kveðja, K

Valdimar Þór Svavarsson fyrirlesari og ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu.
Valdi­mar Þór Svavars­son fyr­ir­les­ari og ráðgjafi hjá Fyrsta skref­inu.

Góðan dag­inn og takk fyr­ir þess­ar áhuga­verðu spurn­ing­ar.

Þú nefn­ir lága sjálfs­virðingu og vissu­lega má færa rök fyr­ir því að hún valdi því að við upp­lif­um okk­ur háð öðru fólki, sem er hluti af ást­arþrá (e. Love addicti­on). Auk þess mætti ræða það hvort það er góð sjálfs­virðing að tengj­ast fólki á mjög ná­inn máta, áður en við kynn­umst því nægi­lega vel, til dæm­is til að vita hvort þau er í öðru sam­bandi. Haf­andi sagt þetta þá vil ég hrósa þér fyr­ir að setja mörk. Það er mik­il­vægt að vera raun­sær í líf­inu og það á líka við um sam­bönd. Þú virðist til­bú­in að líta á merk­in sem þú nefn­ir sem ættu að blikka öll­um viðvör­un­ar­ljós­um. Óheiðarleiki, van­traust, kyn­lífs­fíkn, nars­ismi og mögu­leg per­sónu­leikarösk­un eru allt atriði sem við mynd­um virki­lega skoða áður en við fær­um að fjár­festa meira í sam­bandi við slík­an ein­stak­ling. Þá er ég alls ekki að leggja dóm á viðkom­andi og veit auðvitað ekk­ert um það hvort eitt­hvað af þessu er rétt. Þetta er engu að síður þín upp­lif­un og þá er mik­il­vægt að þú hlust­ir á það og ber­ir  virðingu fyr­ir sjálfri þér til þess að setja heil­brigð mörk.

Spenn­an sem mynd­ast gjarn­an í upp­hafi sam­banda get­ur orðið mjög mik­il og það á ekki síst við um sam­bönd við ein­stak­linga sem eru í ein­hvers kon­ar ójafn­vægi. Spenn­an í kring­um óheiðarleik­ann get­ur magnað upp til­finn­ing­ar sem við rugl­um stund­um sam­an við ást. Það virðist líka vera að þessi aðili viti hvernig á að viðhalda spenn­unni og áhug­an­um miðað við það sem þú seg­ir. Fyrst er verið að leyna þig hlut­um og áður en þú veist ertu orðin þátt­tak­andi í óheiðarleika (fram­hjá­haldi). Hann viðheld­ur óheiðarleik­an­um og leynd­ar­mál­inu með því að halda sam­band­inu áfram og segja þér trúnaðar­mál úr sínu eig­in sam­bandi, til dæm­is að þau sofi ekki sam­an (þetta er orðið ykk­ar leynd­ar­mál = sam­eig­in­legt traust). Síðan seg­ir hann þér sorg­ar­sögu sína (búa til meðaumk­un og ýta und­ir þörf þína til að „bjarga“ eða breyta viðkom­andi) og til að rugla þig enn meira í rím­inu seg­ist hann elska þig, þó hann sé í raun ekki til­bú­inn að vera með þér. Ekk­ert af þessu skipt­ir þó í raun máli, það er að segja, hvað hann seg­ir eða ger­ir. Það eina sem skipt­ir máli er hvað þú ætl­ar að gera í þessu. Þú nefn­ir sjálf að þú ótt­ist að þú gæt­ir litið fram hjá öll­um viðvör­un­ar­ljós­un­um. Til þess að forðast al­geng mis­tök þá er okk­ur öll­um hollt að fá lánaða dómgreind, tala við ein­hvern sem sér mál­in án per­sónu­legra teng­inga og get­ur sagt okk­ur hvað viðkom­andi sér. Ég mæli því með því að þú hald­ir áfram að fá lánaða dómgreind gagn­vart þessu máli og vertu góð við þig. Það er ekk­ert óal­gengt né óeðli­legt að finna svona sterk­ar til­finn­ing­ar í svona mál­um og skilj­an­lega erfitt að losa sig frá þeim. Það ger­ist þó með tím­an­um og bygg­ist á því að setja skýr mörk og vera ekki bjóða sér upp á að „smakka“ öðru hverju á því sem kveik­ir á stjórn­lausri löng­un.

Gangi þér allt í hag­inn!

Með bestu kveðju,

Valdi­mar Þór Svavars­son, ráðgjafi. 

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Valdi­mar spurn­ingu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda