Leiðir til að finna ástina í samkomubanni

Það er heldur hart í ári fyrir þá sem eru í ástarleit. Heimsfaraldur og samkomubann eru ekki hlutir sem vinna með fólki sem er að leita sér að lífsförunaut. Það skilar þó engu að kasta inn handklæðinu núna og verða að sófakartöflu. 

Staðirnir til að finna ástina eru færri núna. Það er bannað að djamma, bannað að fara í sund og bannað að fara í ræktina. Allt eru þetta frábærir staðir til að finna ástina en þó ekki einu leiðirnar. Ýmsar leiðir eru til að finna ástina á tímum kórónaveiru, með eða án aðstoð tækninnar. 

Tinder

Stefnumótaforrit eru augljóslega fínasta leið til þess að leita sér að ástinni og gæti þessi aðferð jafnvel virkað betur en nú þar sem þið neyðist til að spjalla mun lengur saman áður en þið ákveðið að hittast. Náðu aftur í Tinder ef þú varst búin að gefast upp á því. Prófaðu að hrista upp í hlutunum, skrifa einhverja skemmtilega lýsingu um þig og „svæpaðu“ eins og vindurinn. 

Byrjaðu að deita meðleigjandann þinn

Þetta ráð virkar reyndar bara ef þú átt meðleigjanda og ef meðleigjandinn er af því kyni sem þú hrífst af. Ef það er ekki möguleiki prófaðu næsta ráð. 

Kannaðu kostina í fjölbýlishúsinu 

Ef þú býrð í fjölbýlishúsi er þetta skothelt ráð. Ef þú hefur hingað til ekki veitt nágrönnum þínum athygli þá skaltu opna augun núna. Er möguleiki á að þú finnir lífsförunaut þinn í stigaganginum? Hver veit? Prófaðu að banka upp á hjá sæta nágrannanum og fáðu lánað egg eða hveiti. Ef allt gengur vel getur þú farið yfir með eitthvað bakkelsi, eða jafnvel boðið í kaffi. 

Deitaðu vinnufélagann þinn 

Þetta ráð er smá snúið þar sem gríðalega margir vinna heima hjá sér þessi dægrin. Með tækninni er þó ýmislegt hægt. Spjallaðu meira við sæta samstarfsfélaga þinn á Facebook, stingdu jafnvel upp á að spjalla á FaceTime. Hlutirnir eru fljótir að gerast á tímum samkomubanns og það eru allir hálf einmana þessa dagana. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda