Skipulag sem virkar!

Gunna Stella heilsumarkþjálfi.
Gunna Stella heilsumarkþjálfi.

„Barnið: „Af hverju ég?“ Af hverju ekki hann? „Ég þarf alltaf að gera allt!“

For­eldri: „Er sann­gjarnt að ég geri allt?“ „Er ég ein­hver þjónn á þessu heim­ili?“

Hef­ur þú heyrt þess­ar setn­ing­ar frá börn­un­um þínum eða svarað á þenn­an hátt? 

Það að halda heim­ili er teym­is­vinna. Heim­ilið á að vera griðastaður sem öll­um líður vel á. Ég vil að börn­un­um mín­um líði vel heima og ég vil líka að okk­ur full­orðna fólk­inu líði vel heima hjá okk­ur. Mér finnst mjög gott að hafa snyrti­legt heim­ili og líður bet­ur þegar hlut­ir eiga sinn stað og ég geti sest á gólfið eða gert arm­beygj­ur án þess að hend­urn­ar á mér verði mjög skít­ug­ar,“ skrif­ar Gunna Stella heil­su­markþjálfi í sín­um nýj­asta pistli:

Við erum mis­jafn­lega mörg á heim­il­inu, oft­ast fleiri en í meðal­heim­ili. Það fer eft­ir því hvort börn­in eru með vini hjá sér eða hvort það séu ætt­ingj­ar í heim­sókn. Það get­ur tekið meira á að halda heim­il­inu snyrti­legu eft­ir því sem fjölg­ar en með því að passa upp á magn hluta (þótt það sé kannski erfiðara eft­ir því sem fólki fjölg­ar) og passa upp á að all­ir hjálp­ist að þá verður heim­il­is­haldið auðveld­ara og öll­um líður bet­ur. 

Ég hef prufu­keyrt hin ýmsu skipu­lög þegar kem­ur að þrif­um og heim­il­is­haldi. Sumt virk­ar bara alls ekki. Sumt hef­ur virkað í nokkr­ar vik­ur og annað í nokkra mánuði. Það er mjög mik­il­vægt að vera vak­andi yfir því hvað má bet­ur fara og hvernig fjöl­skyld­an get­ur unnið bet­ur sam­an. 

Það er góð regla sem gild­ir þegar kem­ur að þessu eins og öðrum sam­skipt­um. Regl­an er sú að tala um hvers við vænt­um við fólkið okk­ar. 

Í sam­komu­bann­inu kom ég upp með skipu­lag fyr­ir fjöl­skyld­una sem var þannig að hver og einn var byrjaður á sinni rútínu (vinna/​skóli) kl. 9:00. All­ir sinntu því til kl. 11:00 og þá var leiktími. Klukk­an 12 borðuðum við há­deg­is­mat sam­an og eft­ir það unnu all­ir hús­verk við hæfi. Eft­ir það var lestr­ar­stund og skjá­tími. Þetta plan hentaði vel þangað til börn­in voru far­in að týn­ast í skóla eitt af öðru. Þá þurfti að koma upp með nýtt plan. Und­an­farn­ar vik­ur höf­um við haft á pró­gramm­inu svo­kölluð „fimmtu­dagsþrif“. Ég prenta út skjal með verk­efn­um sem þarf að vinna, heim­il­is­fólk vel­ur sér verk­efni og er mark­miðið að heim­ilið sé orðið hreint og fínt fyr­ir helg­ina. All­ir geta hjálp­ast að, sama á hvaða aldri þau eru. Sá yngsti sem er 4 ára vinn­ur yf­ir­leitt verk­efni með 7 ára bróður sín­um. Þeir þurrka af eld­hús­stól­un­um, þurrka af sóf­an­um í stof­unni og laga til í her­berg­inu sínu. Mik­il­væg­ast er að all­ir fái verk­efni við hæfi og þeim sé kennt að vinna það vel. 

Heim­il­isþrif eru mik­il­væg­ur hlekk­ur í því að heim­ilið sé griðastaður án þess þó að þrif­in gangi út í öfg­ar. Það eru ekki bara heim­il­isþrif­in sem gera heim­ilið að griðastað held­ur er það líka til­finn­ing­in sem þú upp­lif­ir þegar þú kem­ur heim. 

Hvernig líður þér heima hjá þér?

Hvað get­ur þú gert til þess að skapa nota­legt and­rúms­loft heima hjá þér? Tónlist, ilmerkti, ilmol­í­ur, inni­plönt­ur, af­skor­in blóm, bök­un­arilm­ur. Þetta er sam­an­safn hluta sem ég skil­greini sem „nota­legt“. 

Ég hvet þig ein­dregið til þess að setj­ast niður með fjöl­skyldu þinni. Þú sem for­eldri ert leiðtogi í þinni fjöl­skyldu. Þitt hlut­verk er að leiða börn­in þín áfram og vera fyr­ir­mynd í orði og verki. Þú hef­ur ótrú­lega mik­il áhrif á gleðistuðul­inn á heim­il­inu. Ef þú ert í vondu skapi get­ur það haft áhrif á líðan allra. Ég hef fundið það á mínu heim­ili að það er betra að tala um hluti sem mega bet­ur fara áður en þeir verða að stór­um snjó­bolta. Ég þarf alltaf að vera að end­ur­skoða hlut­verka­skip­an, heim­il­is­hald og annað sem fylg­ir stóru heim­ili. Sumt virk­ar og sumt ekki og það er allt í lagi. Það sem mestu máli skipt­ir er að við sem fjöl­skylda stönd­um sam­an, sýn­um hvort öðru kær­leika og séum fús til að fyr­ir­gefa og biðjast fyr­ir­gefn­ing­ar. 

Gangi þér sem allra best að finna skipu­lag sem hent­ar þér og þínum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda