Óttastu að fara í samband?

Linda Sigríður Baldvinsdóttir markþjálfi hjá Manngildi.
Linda Sigríður Baldvinsdóttir markþjálfi hjá Manngildi. mbl.is/Árni Sæberg

„Þegar við erum orðin svona nokkuð þroskuð og lífs­reynd, kannski frá­skil­in og mis­skil­in eða höf­um orðið fyr­ir sorg­um eins og ástarsorg og missi maka þá er oft erfitt að gefa hjarta sitt full­kom­lega og tengj­ast öðrum á svo nán­um grunni eins og ástar­sam­bönd eru,“ seg­ir Linda Sig­ríður Bald­vins­dótt­ir í sín­um nýj­asta pistli: 

Að mínu viti er þetta full­kom­lega eðli­legt því að þeir sem hafa farið í gegn­um þau atriði sem ég nefndi hér að fram­an vita hversu sárt það er ef að sam­bandið geng­ur ekki upp ein­hverra hluta vegna. 

Það er einnig að mörgu að hyggja þegar í ástar­sam­band er komið og það fyrsta sem upp í huga minn kem­ur er traustið sem get­ur tekið sodd­an óra­tíma að byggja upp þegar við erum búin að upp­lifa lífið. Traust og skuld­bind­ing er það sem bygg­ir upp sam­bandið ásamt vinátt­unni og ást­inni og þess vegna er það svo­lítið erfiðara að gefa hjarta sitt eft­ir áföll á þessu sviði.

Að skuld­binda sig svo einni mann­eskju þegar þú hef­ur kannski verið ein eða einn á báti í mörg ár og ráðið þér al­gjör­lega get­ur vaf­ist fyr­ir okk­ur mörg­um. Ekki vegna þess að við þráum það ekki, held­ur vegna þess að það koma inn í það atriði eins og höfn­un, hræðsla eða ótti við að sam­bandið hald­ist ekki.

Svo er það fjöl­skyld­an sem flest­ir eiga fyr­ir þegar þeir eru komn­ir yfir miðjan ald­ur, börn barna­börn, fyrr­um mak­ar, tengda­mömm­ur og tengdapabb­ar ásamt kannski mök­um barn­anna þinna og þegar svo er vand­ast málið held­ur bet­ur.

Hvað ef börn­un­um þínum lík­ar ekki við nýja mak­ann? Er þá hætta á því að þú miss­ir fjöl­skyldu þína eða mun hún kom­ast til vits hvað það varðar og samþykkja val þitt eða muntu neita þér um sam­bandið til að halda í fjöl­skyld­una?

Munu fyrr­ver­andi mak­ar verða á bak­inu á þér eða verða all­ar fyrr­um Tind­erkær­ust­urn­ar og kær­ast­arn­ir á lín­unni um helg­ar þó að þú sért kom­inn í sam­band? Allt þetta get­ur haft áhrif á varn­ar­viðbrögð þín fram­kvæmd­ir og opn­un hjarta þíns.

Oft breyt­ist líf þitt mikið þegar þú kem­ur inn í nýja fjöl­skyldu og það er ekk­ert ólík­legt að þið komið úr ólíku um­hverfi sem þið þurfið að aðlaga ykk­ur að - og það get­ur tekið á. Þínar venj­ur versus mín­ar venj­ur geta orðið að deilu­mál­um eða valdið kvíða og óró­leika. Jóla­hald ólíkt, tylli­dag­ar og veislu­hald ólíkt og svo fram­veg­is. Allt þetta get­ur haft áhrif og verður til þess að þú lok­ar kannski hjart­anu meira en að þú opn­ir það af ein­skærri hræðslu við að mistak­ast að aðlag­ast öðrum aðila.

Svo eru það vin­irn­ir. Þeir hafa oft meiri áhrif hrein­lega held­ur en fyrr­um og nú­ver­andi fjöl­skyld­ur og mak­ar. Vina­hóp­arn­ir eiga það nefni­lega til að skilja útund­an því að þeir kunnu kannski bara svo vel við fyrr­um mak­ann eða þig þegar þú varst ein­hleyp/​ur þannig að þeir hleypa nýja mak­an­um ekki inn á sitt yf­ir­ráðasvæði og það sær­ir djúpt þegar svo er. Og það er bara svo­lítið ljótt að gera svona krakk­ar.

Við vilj­um öll að val okk­ar á ástar­viðhengj­un­um sé samþykkt og við vilj­um hafa leyfi til að skapa okk­ur ham­ingju á okk­ar hátt, svo tök­um öll­um bara opn­um örm­um á meðan þetta eru ekki stór­glæpa­menn og morðingj­ar.

Í dag er það talið sjálfsagt að vera í fjar­búð og hitt­ast um helg­ar og á tylli­dög­um, ferðast og eiga sam­eig­in­leg áhuga­mál. Ég get vel skilið að það geti hentað í ein­hvern tíma til að hægt sé að forðast ágrein­ing­inn og hræðsluna sem ég talaði um hér að fram­an. Þegar til lengd­ar læt­ur tel ég þó að það sem við þörf­un­umst mest sé ein­mitt að vera í nánd­inni og sam­skipt­un­um sem gefa þessa ein­stöku teng­ingu sem gott sam­band ásamt friði og góðs heim­il­is geta gefið.

Svo ver­um ekki hrædd við ást­ina elsku bestu og opn­um hjarta okk­ar fyr­ir henni og kom­um okk­ur úr varn­argírn­um - það er ekk­ert víst að þetta klikki hjá okk­ur.

En að fara einn í gegn­um lífið án þess að hafa vitni að því skap­ar mörg­um ein­stak­lingn­um ein­manna­kennd og til­gangs­leysi. 

Svo farðu af stað með opið hjarta og slökktu á flig­ht and fig­ht viðbrögðunum þínum, gefðu þér séns á því að hitta mann­eskju og kynn­ast henni á ró­leg­an hátt og sjáðu hvort að hjarta þitt opn­ast ekki smátt og smátt, og hver veit - kannski fyll­ist það af ást og vellíðan eft­ir því sem þú opn­ar það meir og meir. Farðu af stað!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda