Lífið er svo stutt og brothætt

Linda Sigríður Baldvinsdóttir markþjálfi hjá Manngildi.
Linda Sigríður Baldvinsdóttir markþjálfi hjá Manngildi. mbl.is/Árni Sæberg

„Ég fór að velta því fyr­ir mér hvers­vegna við not­um svo stór­an part af lífi okk­ar mörg hver í það að vera reið og pirruð eða að hafa skoðanir á hinu og þessu sem við fáum hvort eð er ekki breytt,“ seg­ir Linda Sig­ríðru Bald­vins­dótt­ir markþjálfi í sín­um nýj­asta pistli: 

Hvernig við sóum kær­leiks­stund­um og gleðistund­um sem við gæt­um átt bara til að halda í það að við séum sann­leik­ann eða að okk­ar viðhorf séu það rétta hverju sinni. Það er þó þannig að í öll­um til­vik­um að hver og einn hef­ur sinn sann­leika og sitt rétta og ranga viðhorf og ekk­ert af því er endi­lega það rétta í stöðunni þar sem marg­ar hliðar eru á hverju máli.

Ég ætla að setja hér nokkr­ar af þeim setn­ing­um sem komu í huga minn þegar ég fór í þess­ar heim­speki­legu vanga­velt­ur um dag­inn.

  • Hvers vegna hugs­um við ekki um hversu stutt lífið er og hversu brot­hætt það er á sama tíma?
  • Hvers vegna hugs­um við ekki út í það að fólkið okk­ar gæti verið tekið út úr lífi okk­ar í dag eða á morg­un, og hvers vegna höld­um við að við höf­um all­an tím­ann í ver­öld­inni til að vera í sam­vist­um við hvert annað? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna hugs­um við ekki um það góða í fari fólks í stað þess að hugsa um það slæma sem það hef­ur í fari sínu, því að öll höf­um við okk­ar kosti og galla? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna sóum við orku okk­ar í að vera reið í fjöl­miðlum eða í sam­ræðum í stað þess að nýta þá orku sem í það fer til að breyta þeim kerf­um sem þarf að breyta í þjóðfé­lag­inu eða finna lausn­ir og koma þeim á rétta staði? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna höf­um við skoðun á því hvernig ná­ung­inn ver lífi sínu, eign­um eða at­höfn­um í stað þess að skoða okk­ar eig­in til­vist? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna verj­um við mörg­um dög­um eða vik­um í að vera pirruð út í ein­hvern og sóa þar með dýr­mæt­um tíma sem við gæt­um átt sam­an? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna heim­sækj­um við ekki þann sem við vit­um að á bágt eða hringj­um í hann? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna segj­um við ekki fal­leg upp­byggj­andi orð við þá sem eiga stað í hjarta okk­ar núna strax í dag? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna bök­um við ekki pönns­ur og fær­um þeim sem við vit­um að eru ein­manna og þurfa á hlýju að halda? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna fram­kvæm­um við ekki það sem okk­ur lang­ar að fram­kvæma hvað sem öðrum kann að finn­ast um það. Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna stimpl­um við at­b­urði og aðstæður þannig að eitt sé gott en annað vont þegar að við flest ger­um okk­ur grein fyr­ir því að þetta er allt að sam­verka til góðs með ein­um eða örðum hætti fyrr eða seinna? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna hugs­um við ekki bet­ur um heilsu okk­ar, mat­ar­ræði og hreyf­ingu þegar við horf­um uppá að hún er eitt það dýr­mæt­asta sem við eig­um? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna not­um við ekki dag­inn í dag til að búa okk­ur til gleðistund­ir? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna opn­um við ekki hjarta okk­ar fyr­ir ást­inni og kær­leika sam­ferðamanna okk­ar? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna ferðumst við ekki til þeirra staða sem okk­ur lang­ar að heim­sækja á meðan við erum hér á jörðu, þó að það sé aðeins í draum­heim­um okk­ar? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna leyf­um við fólki sem tek­ur frá okk­ur orku og gleði að vera inni í lífi okk­ar? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna leyf­um við fram­komu sem set­ur okk­ur niður eða ger­ir lítið úr okk­ur? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna finnst okk­ur við ekki nóg af ein­hverju eða of mikið af ein­hverju og hvers vegna eig­um við ekki allt það besta skilið? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna segj­um við ekki fyr­ir­gefðu þegar við ætt­um að gera það? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna leyf­um við mis­skiln­ingi að eiga sér stað án þess að ræða það við viðkom­andi aðila? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna leyf­um við okk­ur ekki að elska þá dýr­mætu sköp­un sem við erum? (þú ert eina ein­takið af þér) Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna um­vefj­um við okk­ur ekki og hugg­um þegar hjarta okk­ar er sárt í stað þess að harka af okk­ur og æða áfram? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna höld­um við í bit­ur­leika okk­ar í stað þess að sjá að all­ir sem inn í líf okk­ar komu gáfu okk­ur kennslu­stund­ir og fyr­ir þær ber að þakka? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna gef­um við starfsþrek okk­ar um­fram getu og orku og gef­umst ekki upp fyrr en að lík­am­inn seg­ir stopp? Lífið er svo stutt og brot­hætt.
  • Hvers vegna erum við ekki okk­ar bestu vin­ir, alltaf? Lífið er svo stutt og brot­hætt.

Og að lok­um, hvers vegna njót­um við ekki þeirr­ar dá­semd­ar sem lífið er og þökk­um fyr­ir allt það sem við höf­um alla daga og lít­um það já­kvæðum þakk­lát­um aug­um?

Því að lífið er svo stutt, svo allt of stutt til að sóa því í leiðindi af öll­um toga.

Kær­leikskveðja til ykk­ar elsk­urn­ar og eins og ætíð er ég aðeins einni tímapönt­un í burtu ef þú tel­ur að ég geti aðstoðað þig á lífs­veg­in­um. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda