Umhyggja á óvissutímum

Linda Sigríður Baldvinsdóttir markþjálfi hjá Manngildi.
Linda Sigríður Baldvinsdóttir markþjálfi hjá Manngildi. mbl.is/Árni Sæberg

„Á síðustu miss­er­um höf­um við Íslend­ing­ar svo sann­ar­lega sýnt og sannað að við erum stórasta þjóð í heimi þegar kem­ur að því að sýna um­hyggju gagn­vart okk­ar sam­lönd­un­um á erfiðum tím­um.

Við höf­um sungið fyr­ir þá eldri sem ein­angruð eru, við höf­um sungið fyr­ir hvert annað og við höf­um sungið fyr­ir þá sem veik­ir eru. Við höf­um dansað, djókað, farið út í búð fyr­ir ná­granna okk­ar og við höf­um þvegið okk­ur og sprittað allt í nafni um­hyggj­unn­ar,“ seg­ir Linda Bald­vins­dótt­ir í sín­um nýj­asta pistli: 

Hversu fag­urt er þetta ekki?

Þetta sýn­ir svo vel okk­ar þjóðarein­kenni þegar á bját­ar, þar erum við sem einn maður að vinna að heill allra með um­hyggju, sam­kennd og hæfi­leik­um okk­ar á hinum ýmsu sviðum.

Við höf­um gefið gjaf­ir eins og hug­leiðslur, leik­fimi, jóga, dans, nám­skeið, fría tíma í allskon­ar aðstoð og við ger­um það af svo mikl­um kær­leika að ég eig­in­lega kemst bara við og fyll­ist svo miklu stolti af okk­ar lands­mönn­um. 

Núna virðist eins og bylgja núm­er eitt­hvað af Covid sé að skella á okk­ur eða Delta 2 af­brigðið og við erum orðin örþreytt á óör­ygg­inu, ein­angr­un­inni og öllu því sem fylg­ir þessu ástandi en get­um þó ekki gef­ist upp fyr­ir því.

Þegar við stönd­um frammi fyr­ir aðstæðum sem þess­um þá held ég að það sé gott fyr­ir okk­ur að hafa í huga að um­hyggja og um­hugs­un um ná­unga okk­ar virðast vera þeir þætt­ir  sem bæta helst geð okk­ar og ham­ingju sam­kvæmt öll­um rann­sókn­um sem ég hef rek­ist á.

Um­hyggj­an minnk­ar streitu og hættu á sjúk­dóm­um á sama tíma svo nýt­um okk­ur allt það fal­lega sem við eig­um í hjarta okk­ar til að gera þessa tíma bæri­lega í stað þess að ráðast gegn hvort öðru og pirr­ast ógur­lega. Engu að síður er það staðreynd að við erum á stað und­ir­liggj­andi kvíða þó að við ger­um okk­ur ekki endi­lega grein fyr­ir því og verðum þar af leiðandi upp­stökk og þráður­inn verður oft styttri. Álag er einnig á mörg­um og streit­an nærri svo að við þurf­um að passa okk­ur svo­lítið og skoða líðan okk­ar.

Mun­um að við erum mann­leg­ar ver­ur sem þurf­um þessa nánd og um­hyggju, faðmlög og vináttu við hvert annað og það er auðvelt að gleyma því að sinna því gagn­vart þeim sem standa hjarta okk­ar nærri með ein­hverj­um hætti.

En hvað get­um við gert fyr­ir hvert annað til að létta þessa tíma þar sem nánd­in þarf að víkja og við erum orðin þreytt á sí­felld­um breyt­ing­um til og frá og vit­um ekk­ert hvað morg­undag­ur­inn ber í skauti sér? 

Í fyrsta lagi ætt­um við að huga að þeim sem í innsta hring okk­ar eru og muna eft­ir þeim alla daga, ekki bara á sunnu­dög­um, pásk­um og jól­um.

Í öðru lagi ætt­um við að hafa þá í huga sem búa ein­ir eða hafa lít­inn eða eng­an fé­lags­leg­an stuðning, tök­um bara upp sím­ann og hringj­um í þá.

Í þriðja lagi þá get­um við haft „on­line hitt­inga“ af ýms­um toga, sauma­klúbb,  og t.d hef ég nokkr­um sinn­um farið í leiki með barna­börn­un­um á net­inu og átt þannig sam­fé­lag við þau þegar ég hef ekki viljað taka séns­inn á því að hitta þau vegna veik­inda öðru hvoru meg­in.

Í fjórða lagi get­um við sent óvænt­ar gjaf­ir eins og blóm og súkkulaði til þeirra sem við vit­um að eru ein­manna eða í sótt­kví og glatt þannig hjarta þeirra.

Í fimmta lagi þá get­um við sent texta­skila­boð til þeirra sem okk­ur þykir vænt um þar sem við segj­um eitt­hvað krútt­legt og sætt við þá í byrj­un dags­ins, það létt­ir dag­inn hjá mörg­um að fá þannig skila­boð.

Í sjötta lagi þá ætt­um við að nota ímynd­un­ar­aflið okk­ar til að finna upp það sem ætti að vera í sjö­unda lagi hér fyr­ir neðan.

Finn­um allt sem gleður og hjálp­ar styður okk­ur í leiðinni til gleðilegra lífs og sátt­ar við okk­ur sjálf og sam­ferðafólkið okk­ar.

Svo tækl­um þessa nýju stöðu okk­ar með æðru­leysið að vopni og kær­leik­ann að leiðarljósi elsk­urn­ar, það skil­ar alltaf góðum ár­angri að lok­um ásamt því að við fáum  betra sjálfs­traust og heilsu í bón­us.

Með kær­leikskveðju og fullri trú á okk­ur Íslend­ing­um í þess­ari her­ferð við Delta 2 eins og öll hin af­brigðin og ver­um dug­leg að deila þessu og öllu því sem við finn­um já­kvætt og upp­byggj­andi á net­inu svo að um­hyggj­an dreifi sér sem víðast um landið og miðin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda