Konur sem fundu fjárhagslegt frelsi

Stundum þarf að hugsa hlutina upp á nýtt til þess …
Stundum þarf að hugsa hlutina upp á nýtt til þess að verða frjáls. mbl.is/Thinkstockphotos

Leit­in að fjár­hags­legu frelsi hefst ekki þegar maður nær ákveðinni krónu­tölu inni á banka­reikn­ingn­um held­ur þegar maður til­eink­ar sér visst hug­ar­far gagn­vart pen­ing­um. Það þarf mikið hug­rekki að taka skref í átt að mark­tæk­um breyt­ing­um hvað pen­inga­mál varðar. Fjór­ar kon­ur ákváðu að taka mál­in í sín­ar hend­ur, breyttu um takt í líf­inu og upp­skáru ríku­lega. Þær deila sinni sögu hér.

Sneri dæm­inu sér í hag

Rit­höf­und­ur­inn Kelly Hayes-Raitt bauð sig fram til op­in­bers embætt­is fyr­ir ára­tug síðan. Hún tapaði og kosn­inga­bar­átt­an skildi hana eft­ir í mikl­um mín­us fjár­hags­lega. Hún var stór­skuldug og átti erfitt með að borga af hús­næðislán­inu. 

Í stað þess að selja húsið ákvað hún að snúa dæm­inu sér í hag. Hún lagði í end­ur­bæt­ur á hús­inu til þess að freista leigj­enda. Hún leigði svo út húsið og fór sjálf á flakk. Hún hóf að passa hús fyr­ir aðra og smátt og smátt varð það henn­ar helsta at­vinna. Nú ferðast hún um heim­inn að passa hús. Uppi­haldskostnaður henn­ar er tölu­vert lægri og hún er ham­ingju­sam­ari og horf­ir björt­um aug­um til framtíðar.

Þurfti að breyta um hugs­un­ar­hátt

Meg­an Driscoll hafði alla tíð látið stjórn­ast af hræðslu og skorts­hug­ar­fari þegar kom að fjár­mál­um. Hún rak fyr­ir­tæki og hafði stöðugar áhyggj­ur af af­komu þess. Hún áttaði sig þó á því að hræðsla væri ekki væn­leg til lengri tíma litið þegar kem­ur að því að reka fyr­ir­tæki. Og það hvernig hún ein­blíndi á bók­haldið kom í veg fyr­ir að hún gat veitt öðrum þátt­um fyr­ir­tæk­is­ins at­hygli. Hún ákvað því að breyta viðhorfi sínu og ein­blína frek­ar á tæki­fær­in.

Þessi breytti hugs­un­ar­hátt­ur gerði það að verk­um að orka henn­ar fór í meira gef­andi tæki­færi í fyr­ir­tæk­inu. „Ef þú ert að upp­fylla þínar þrár og lang­an­ir í vinn­unni, þá eru pen­ing­arn­ir vissu­lega mik­il­væg­ir en samt ekki mark­mið í sjálfu sér.“

Sjálfs­traust er mik­il­vægt

Kat­her­ine Con­away hætti í vinn­unni til þess að verða verktaki. „Maður verður að hafa trú á sjálf­um sér til þess að fórna föst­um mánaðarlaun­um,“ seg­ir Con­away sem tek­ur að sér ráðgjaf­ar­verk­efni. 

„Ég var mjög stressuð með fjár­mál­in og óör­ugg með gildi mitt. En verk­efn­in komu og sjálfs­traustið jókst. Enn í dag skammta ég mér naumt en kvíðinn og áhyggj­urn­ar eru horfn­ar og ég hef fulla trú á mér. Þetta snýst um að leggja sig fram og vera þol­in­móður.“

Fjár­festi í vinnu­afli

Stephanie Smolder, stofn­andi Tourist Exclusi­ve, hafði alltaf fyr­ir reglu að ráða til sín ódýrt vinnu­afl. Þannig gat fyr­ir­tækið haldið starfs­manna­kostnaði niðri og náð fjár­hags­leg­um mark­miðum fyr­ir­tæk­is­ins. En eft­ir tvö ár hætti þessi leið að virka. Hún þurfti að hugsa allt upp á nýtt og sá að betra væri að hafa færri starfs­menn en mjög klára og reynda sem hún gæti treyst fyr­ir mik­il­væg­um verk­efn­um til þess að koma fyr­ir­tæk­inu áfram.

„Um leið og ég ákvað að fjár­festa í mér og öðrum þá byrjaði fyr­ir­tækið að vaxa á nýj­an leik.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda