Einföldu peningaráðin sem eiga til að gleymast

Peningar eru vandmeðfarnir.
Peningar eru vandmeðfarnir. mbl.is/Golli

Til eru fjöl­mörg pen­inga- og sparnaðarráð að ógern­ing­ur er að fylgja þeim öll­um. Þrátt fyr­ir það eru til sí­gild ráð sem standa tím­ans tönn en eiga það til að gleym­ast í hvirfil­byln­um sem lífið get­ur verið. The Bus­iness Insi­der tók sam­an nokk­ur ein­föld en afar mik­il­væg ráð sem all­ir ættu að hafa bakvið eyrað.

1. Byrjaðu á að borga þér

„Fólk er enn ekki búið að ná tök­um á þeirri staðreynd að það þarf að taka til hliðar upp­hæð af öllu því sem það þénar,“ seg­ir Dav­id Bach rit­höf­und­ur og millj­óna­mær­ing­ur. Hann seg­ir að meðal Banda­ríkjamaður­inn setji í sparnað því sem nem­ur 15 mín­út­um á dag af tekj­um sín­um þegar það ætti að vera nær klukku­tíma á dag.

Hann bend­ir á niður­stöður kann­ana sem sýna að fæst­ir eigi fyr­ir óvænt­um út­gjöld­um sem nema um 400 doll­ara eða um 57 þúsund ís­lenskra króna. Þrátt fyr­ir það eru millj­ón­ir manna sem kaupa sér Star­bucks kaffi dag hvern og stefna á að kaupa sér nýj­asta snjallsím­ann. Banda­ríkja­menn eiga þar af leiðandi pen­ing en eru bara ekki að setja hann í sparnað.

Bach mæl­ir með að fólk borgi sér fyrst. Láti taka sjálf­krafa af laun­un­um hvern mánuð, inn á reikn­ing sem ekki er hægt að snerta. Þannig bygg­ir maður upp fjár­magn.

2. Varaðu þig á að detta í sí­fellt flott­ari lífs­stíl

Þrýst­ing­ur­inn að halda í við vina­hóp­inn get­ur verið mik­ill. Kannski eru vin­irn­ir að kaupa flott­ari bíla en þú eða búa í dýr­ari hús­um. En ef þú ert ekki þar fjár­hags­lega þá skaltu ekki einu sinni reyna að fara þangað!

„Ég kalla þetta þegar lífs­stíll­inn aft­an að manni. Það er mik­il­vægt að halda föst­um út­gjöld­um stöðugum og í takti við það sem maður þénar,“ seg­ir Katie Brewer fjár­málaráðgjafi.

„Að halda vel utan um end­ur­tek­in út­gjöld trygg­ir það að út­gjöld­in læðist ekki aft­an að manni og setji allt úr skorðum. Ef þú ert hins veg­ar á góðum laun­um þá máttu eyða pen­ing­um eins og þú vilt svo lengi sem lífs­stíll­inn taki ekki yfir og verði dýr­ari en það sem þú hef­ur efni á.“

Í hnot­skurn: Ekki eyða um efni fram!

3. Nýttu þér mót­fram­lag launa­greiðanda

Mót­fram­lag launa­greiðenda er mik­ill kost­ur og sá sem fer í mis við það er í raun að hafna launa­hækk­un sem því nem­ur. Þetta eru ókeyp­is pen­ing­ar, ekki láta þá fram­hjá þér fara.

4. Hafðu neyðarsjóð til­tæk­an

Þetta er aldrei spurn­ing um hvort eitt­hvað komi upp á held­ur hvenær. „Það skipt­ir ekki máli hversu skipu­lagður maður er, stund­um ger­ast hlut­ir sem maður hef­ur enga stjórn á,“ seg­ir Bach.

„Fólk get­ur misst vinn­una, heils­una, mak­ann sinn. Efna­hags­lífið get­ur tekið dýfu, hluta­bréf fallið og fyr­ir­tæki farið á haus­inn. Kring­um­stæður breyt­ast. Ef það er eitt­hvað sem þú get­ur treyst á í líf­inu það er hversu hverf­ult það er.“

Flest­ir fjár­mála­sér­fræðing­ar mæla með því að spara pen­ing sem nem­ur þrem­ur til níu mánaða út­gjöld­um sem hægt er að nota þegar allt fer í kalda­kol. Þá þarftu síður að reiða þig á vel­vild fjöl­skyldumeðlima eða stofna til mik­illa skulda.

5. Borgaðu upp kred­it­kortið

„Stund­um eru kred­it­kort eins og ókeyp­is pen­ing­ar...þar til reikn­ing­ur­inn berst manni! Stund­um er freist­andi að ýta reikn­ing­un­um á und­an sér og safna upp dýr­um vöxt­um. Ekki gera það. Borgaðu upp reikn­ing­inn um hver mánaðamót.

6. Ekki samt sitja á of mikl­um pen­ing­um

„Þó að það sé mik­il­vægt að spara þá er líka mik­il­vægt að ávaxta pen­ing­ana vand­lega ef maður á þá. Ekki láta þá bara sitja inni á reikn­ingi sem gef­ur litla sem enga vexti. Kynntu þér mögu­leik­ana á að ávaxta pen­ing­ana bet­ur. Hvort sem um er að ræða bund­inn reikn­ing með hærri vöxt­um eða blandaðan fjár­fest­inga­sjóð.“

7. Borgaðu fyrst niður skuld­irn­ar sem hafa hæstu vext­ina

„Þú græðir meira á því að borga niður skuld sem ber mikla vexti held­ur en að reyna að ávaxta pen­ing­ana á meðan.“
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda