„Við sækjum þig bara í haust“

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    „Þegar ég var að al­ast upp þá þótti það hinn eðli­leg­asti hlut­ur að vera send­ur í sveit á sumr­in,“ seg­ir Valdi­mar Þór Svavars­son, ráðgjafi og fyr­ir­les­ari hjá Fyrsta skref­inu, ráðgjafaþjón­ustu sem hann á og rek­ur ásamt eig­in­konu sinni, Berg­lindi Magnús­dótt­ur. 

    „Marg­ir upp­lifðu áfall í fyrsta skiptið sem þeir fóru í sveit til fólks sem þeir þekktu lítið. En það þótti ekk­ert óeðli­legt að segja bara: „heyrðu, við sækj­um þig bara í haust,“ seg­ir Valdi­mar sem hef­ur ára­tuga­langa reynslu af áfalla- og upp­eld­is­fræðum.

    Upp­eldið hef­ur mót­andi áhrif

    Valdi­mar Þór hef­ur til fjölda ára aðstoðað ein­stak­linga við að tak­ast á við ýms­ar áskor­an­ir lífs­ins. Til að mynda sam­skipti, úr­vinnslu á til­finn­ing­um og meðvirkni sem nán­ast und­an­tekn­inga­laust er hægt að rekja til upp­vaxt­ar­ár­anna.   

    „Ef maður skoðar upp­eld­is­fræði þá er það mjög mik­il­vægt að við öl­umst upp við það að fá nær­ingu frá for­eldr­um. At­hygli og stuðning frá báðum for­eldr­um. Ef það er ekki til staðar þá eru lík­ur á því að börn fari að þróa með sér ákveðna varn­ar­hætti og fara ómeðvitað að hætta að tengja við til­finn­ing­ar,“ seg­ir hann.

    „Þá kom­um við að ákveðnum fræðum sem snúa að því og ég aðhyll­ist mjög. Þegar við erum búin að þróa svona varn­ar­hætti þá höld­um við áfram að nota þá. Svo verðum við full­orðin og tengj­um ekki á heil­brigðan hátt við til­finn­ing­ar.“

    Valdi­mar Þór er gest­ur Berg­lind­ar Guðmunds­dótt­ur í Dag­mál­um.

    Viðtalið við Valdi­mar má í heild sinni nálg­ast hér.

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert

    Spurt og svarað

    húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

    sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

    einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

    endurskoðandi svarar spurningum lesenda

    Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

    hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

    svarar spurningum um lögfræðileg mál

    lýtalæknir svarar spurningum lesenda