15 atriði sem fólk með gott sjálfstraust gerir ekki

Valdimar Þór Svavarsson fyrirlesari og ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu.
Valdimar Þór Svavarsson fyrirlesari og ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu.

„Ef það væri eitt­hvað eitt sem ég ætti að nefna að væri al­geng­asta vanda­málið hjá þeim hundruðum aðila sem ég hef hitt og talað við í mín­um störf­um síðustu árin, þá væri það óvissa um hvaða leið fólk vill fara í líf­inu. Mjög marg­ir upp­lifa sig staðnaða, ófull­nægða og jafn­vel mjög óham­ingju­sama, finnst þeir ekki kom­ast úr hjól­för­un­um, eru fast­ir,“ seg­ir Valdi­mar Þór Svavars­son ráðgjafi hjá Fyrsta skref­inu í sín­um nýj­asta pistli: 

Það er ekki óal­gengt að í sam­töl­un­um komi upp spurn­ing­in: „Hvað vilt þú?“. Það er ekki held­ur óal­gengt að svarið sem kem­ur er „Ég veit það ekki“! Þetta er ákveðin pattstaða sem hrjá­ir marga, að vilja breyt­ing­ar en telja sig ekki vita hverju þeir ættu að breyta. Ef maður ýtir aðeins bet­ur við fólki kem­ur oft­ar en ekki í ljós að innst inni eru samt ein­hver svör að finna við spurn­ing­unni.

Ef enn bet­ur er skoðað op­in­ber­ast oft­ast að það er ótt­inn við breyt­ing­ar sem veld­ur því að það er ein­fald­ara að halda því fram að maður viti ekk­ert hvað maður vill, held­ur en að eiga það á hættu að þurfa að gera breyt­ing­ar í líf­inu. Þessi ótti hef­ur mjög marg­ar birt­inga­mynd­ir en oft­ar en ekki er það ótti við skoðanir annarra sem tek­ur mesta plássið. Hvort sem það eru for­eldr­ar, maki, ætt­ingj­ar, vinnu­fé­lag­ar, vin­ir eða bara eitt­hvað fólk þarna úti, þá er mjög al­gengt að innst inni er fólk log­andi hrætt við ímynduð viðbrögð og skoðanir annarra sem gætu komið upp ef viðkom­andi ger­ir breyt­ing­ar.

Ástæðan fyr­ir því að ég segi „ímynduð“ viðbrögð eða skoðanir annarra er ein­fald­lega vegna þess að það er það sem þau eru, ímynduð. Það er ekki raun­veru­leik­inn held­ur það sem viðkom­andi ímynd­ar sér að muni ger­ast. Hvort sem aðrir hafa skoðanir á því hvað við ger­um, eða ekki, þá eru það allt ímyndaðar hug­mynd­ir þangað til það reyn­ir raun­veru­lega á það.

Ann­ars­kon­ar ótti er líka oft að hreiðra um sig innra með fólki, ótt­inn við að standa sig ekki, að vera ekki nóg­ur góð. Það er sam­mann­legt að upp­lifa ótta gagn­vart viðfangs­efn­um sem reyna mikið á okk­ur, til dæm­is að gera dra­stísk­ar breyt­ing­ar í líf­inu okk­ar. Spurn­ing­in er bara hvort við ætl­um að gera það að vana að gef­ast upp fyr­ir ótt­an­um og gera ekki neitt. Eitt sinn heyrði ég að hug­rekki væri ótti sem hefði farið með bæn­irn­ar sín­ar.

Þetta minn­ir mig á setn­ingu í bíó­mynd sem ég sá ein­hvern tím­ann og fannst svo­lítið fynd­in. Þar var ein­hver hetj­an að tala við Mexí­kóa sem var ótta­sleg­inn og treysti sér ekki til að gera það sem þurfti að gera. Hetj­an spurði hinn með mjög ákveðnum svip: „Are you a Mex­ican or a Mex­ican‘t“.

Hvað sem því líður að kom­ast að því hvað maður vill gera eða vera, þá er stund­um hægt að skoða and­stæðurn­ar, hvað maður vill ekki. Rit­höf­und­ur­inn Daniel Wal­len skrifaði eitt sinn blogg um 15 atriði sem fólk með gott sjálfs­traust ger­ir ekki. Mér finnst þetta nokkuð góðir punkt­ar og læt þá fylgja með þess­ari hug­leiðingu.

15 atriði sem fólk með gott sjálfs­traust ger­ir ekki:

  1. Býr til af­sak­an­ir. Fólk með gott sjálfs­traust stend­ur með eig­in hugs­un­um og gjörðum. Því finnst það ekki þurfa að koma með af­sak­an­ir fyr­ir hinu og þessu. Það kenn­ir um­ferðinni ekki um að það mætti seint í vinn­una en seg­ist ein­fald­lega hafa orðið seint. Fólk með gott sjálfs­traust af­sak­ar sig ekki með að það hafi ekki tíma eða sé ekki nógu gott til að geta gert eitt­hvað. Það býr til tíma og held­ur áfram að styrkja sig þar til þeim finnst þau vera nógu góð.
  2. Forðast hluti. Sjálfs­ör­uggt fólk læt­ur ótta ekki stjórna lífi sínu. Það veit að hlut­irn­ir sem það er hrætt við eru þeir hlut­ir sem það þarf að kljást við til að þrosk­ast og verða sú mann­eskja sem þeim er ætlað að vera.
  3. Lifa í þæg­inda­hringn­um. Fólk með mikið sjálfs­álit held­ur sig ekki inni í þæg­inda­hringn­um held­ur tekst á við óþæg­indi vegna þess að það veit að það þarf að þrýsta á þæg­inda­hring­inn til að ná ár­angri.
  4. Fresta hlut­un­um. Fólk með gott sjálfs­traust veit að það er betra að gera eitt­hvað varðandi góða hug­mynd í dag frek­ar en að ætla að gera eitt­hvað varðandi frá­bæra hug­mynd seinna. Það bíður ekki eft­ir réttri tíma­setn­ingu eða rétt­um kring­um­stæðum vegna þess að það veit að þannig viðhorf er byggt á hræðslu við breyt­ing­ar. Þau taka af skarið, hér og nú, í dag. Þannig næst ár­ang­ur.
  5. Fá skoðanir annarra á heil­ann. Fólk með gott sjálfs­traust fær ekki skoðanir annarra á heil­ann. Þau vilja hafa góð áhrif á heim­inn og vilja að öðrum gangi vel, en velta sér ekki upp úr nei­kvæðum skoðunum annarra. Sjálfs­ör­uggt fólk veit hverj­ir raun­veru­leg­ir vin­ir þess eru og að þeir muni taka því eins og það er og er því ekki að velta sér upp úr hvað öðrum finnst.
  6. Dæma annað fólk. Fólk með gott sjálfs­traust dæm­ir ekki annað fólk, það finn­ur ekki þörf­ina til að baktala aðra til að láta sér líða bet­ur og taka ekki þátt í slúðri og óþarfa drama­tík. Sjálfs­ör­uggu fólki líður vel í eig­in skinni og finn­ur enga þörf fyr­ir að líta niður á annað fólk.
  7. Láta skort stoppa sig. Sjálfs­ör­uggt fólk get­ur notað það sem til er til að klára verk­efn­in. Það veit að allt er mögu­legt ef það neit­ar að gef­ast upp og er með sköp­un­ar­gáf­una að vopni. Sjálfs­ör­uggt fólk velt­ir sér ekki upp úr hindr­un­um held­ur ein­beit­ir sér að því að finna lausn­ir.
  8. Gera sam­an­b­urð. Sjálfs­ör­uggt fólk ber sig ekki við aðra og veit að það er ekki að keppa við annað fólk. Fólk með gott sjálfs­álit kepp­ir aðeins við sjálft sig og ein­beit­ir sér að því að bæta sig. Þau vita að saga hvers og eins eru bæði ein­stak­ar og ólík­ar og því al­gjör­lega til­gangs­laust að bera sig sam­an við aðra.
  9. Reyna að gera fólki til geðs. Fólk með gott sjálfs­traust reyn­ir ekki að gera öðru fólki til geðs. Það veit að það kem­ur ekki öll­um vel sam­an og að þannig er lífið ein­fald­lega. Sjálfs­ör­uggt fólk ein­beit­ir sér frek­ar að því að styrkja góð sam­bönd held­ur en að reyna að stofna til eins margra sam­banda og hægt er.
  10. Þurfa stöðuga hvatn­ingu. Fólk með gott sjálfs­traust þarf ekki stöðuga hvatn­ingu og get­ur staðið á eig­in fót­um. Það veit að lífið er ekki alltaf sann­gjarnt og að hlut­irn­ir munu ekki alltaf fara eins og það hefði viljað. Þar sem það veit að það get­ur ekki stjórnað öllu í líf­inu, ein­beit­ir það sér frek­ar að því að bregðast við aðstæðum á já­kvæðan hátt til þess að fær­ast nær mark­miðum sín­um.
  11. Forðast óþægi­leg­an sann­leik. Fólk með gott sjálfs­traust tækl­ar vanda­mál lífs­ins strax áður en þau verða stærri. Það veit að vanda­mál­in sem liggja óleyst eiga það til að verða stærri með tím­an­um ef ekk­ert er að gert. Þau vilja til dæm­is frek­ar eiga krefj­andi sam­töl við maka sinn í dag held­ur en að sópa sann­leik­an­um und­ir teppið og stofna traust­inu í hættu.
  12. Gef­ast upp. Sjálfs­ör­uggt fólk gefst ekki upp vegna smá­vægi­legra mistaka. Það stend­ur upp þegar það hef­ur hrasað og held­ur áfram. Það veit að mis­tök eru hluti af þroska­ferl­in­um og ef þeim mistekst reyna þau að finna hvað fór úr­skeiðis og nota reynsl­una til að gera bet­ur.
  13. Þurfa leyfi til að aðhaf­ast. Fólk með gott sjálfs­traust þarf ekki leyfi frá öðrum til að gera það sem það vill gera, það ger­ir hlut­ina það án þess að hika. Það minn­ir sig á að „Ef ég geri þetta ekki, hver þá?“
  14. Tak­marka sig við lít­inn verk­færa­kassa. Fólk með gott sjálfs­traust þarf ekki að skuld­binda sig við fyrstu áætl­un­ina sem það gerði. Þau nýta alla þá mögu­leika sem þau hafa, halda stöðugt áfram að prófa aðferðir þar til þau finna hag­kvæm­ustu leiðina til þess að ná sem mest­um ár­angri.
  15. Taka öllu trú­an­legu sem þau lesa á in­ter­net­inu. Sjálfs­ör­uggt fólk tek­ur ekki allt sem heil­ag­an sann­leik sem það les á net­inu, bara af því ein­hver seg­ir eitt­hvað. Það skoðar það sem sagt er og met­ur það út frá sínu sjón­ar­horni með heil­brigðri gagn­rýni. Þau nýta það sem þeim gagn­ast og finnst rétt en láta annað eiga sig. Þrátt fyr­ir að grein eins og þessi geti verið áhuga­verð og já­kvæð, þá vita þeir sem búa yfir góðu sjálfs­ör­yggi best sjálf­ir hvað hvet­ur þá áfram og veit­ir þeim sjálfs­traust.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda