„Mér finnst hundleiðinlegt að vera ein“

Ásdís Rán Gunnarsdóttir er komin með sitt eigið hlaðvarp. Það …
Ásdís Rán Gunnarsdóttir er komin með sitt eigið hlaðvarp. Það heitir Krassandi konur. Ljósmynd/YouTube.com

Fyr­ir­sæt­an Ásdís Rán Gunn­ars­dótt­ir er byrjuð með hlaðvarp sem nefn­ist Krass­andi kon­ur. Í fyrsta þætt­in­um ræðir hún við Valdi­mar Þór Svavars­son ráðgjafa hjá Fyrsta skref­inu en les­end­ur Smart­lands þekkja hann vel en hann hef­ur svarað spurn­ing­um frá les­end­um um ára­bil. 

Í þætt­in­um tala þau um hvernig hægt er að lifa ham­ingju­sömu lífi eft­ir áföll og hvort það sé hægt að byggja upp sam­band eft­ir fram­hjá­hald. 

Hvar drög­um við mörk­in varðandi hegðun á sam­fé­lags­miðlum? Er í lagi kvænt­ir menn setji hjarta við mynd­ir af ung­um stúlk­um? Er í lagi þegar kvænt­ir menn sendi kon­um kyn­ferðis­leg skila­boð á sam­fé­lags­miðlum? 

Talið best líka að sam­bönd­um. Ásdís Rán seg­ir að henni finn­ist hund­leiðin­legt að eiga ekki kær­asta. 

„Mér finnst ég ekki nóg ein. Mér finnst erfitt að vera á lausu því það er of mikið áreiti. Mér finnst hund­leiðin­legt að vera ein,“ seg­ir Ásdís Rán og Valdi­mar seg­ir að það sé ekk­ert að því. Það sé eðli­legt að fólk vilji para sig með öðru fólki. 

Valdi­mar seg­ir að það séu til marg­ar teg­und­ir af sam­bönd­um og það sé mjög mik­ill mun­ur á venju­legu sam­bandi og inni­halds­ríku sam­bandi. 

Valdimar Þór Svavarsson fyrirlesari og ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu.
Valdi­mar Þór Svavars­son fyr­ir­les­ari og ráðgjafi hjá Fyrsta skref­inu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda