3 leiðir til að láta samband bólfélaga ganga upp

Unsplash/Womanizer Toys

Í sí­breyti­leg­um heimi nú­tíma­sam­skipta er hug­takið ból­fé­lagi ekki talið vera eins óviðun­andi og það var áður fyrr. Hægt er að líta á það sem svo að slíkt sam­band inni­haldi í raun það besta úr báðum heim­um, tæki­færi til að kanna kyn­ferðis­leg­ar lang­an­ir þínar með ein­hverj­um sem þú þekk­ir á sama tíma og þú forðast ábyrgð og fylgi­kvilla lang­tíma­skuld­bind­ing­ar.

Fyr­ir­komu­lagið sem fylg­ir ból­fé­lög­um get­ur ýtt und­ir til­finn­ingu um frelsi og lík­am­lega ánægju. Í sum­um til­fell­um gæti það jafn­vel virkað bet­ur en hefðbundið sam­band. Hins veg­ar get­ur slíkt fyr­ir­komu­lag auðveld­lega farið úr bönd­un­um, sem leiðir til ófyr­ir­sjá­an­legra áskor­ana sem eiga ræt­ur að rekja til slæmra sam­skipta og fyr­ir fram mótaðra hug­mynda.

Til að viðhalda góðu ból­fé­laga­sam­bandi þarf að gæta varúðar. Hér eru nokk­ur ráð þegar kem­ur að því að viðhalda vin­skap af kyn­ferðis­leg­um toga.

Setjið ykk­ur skýr mörk

Skýr og opin sam­skipti eru grunnstoðir allra heil­brigðra sam­banda en geta haft enn meiri vægi fyr­ir sam­band á milli ból­fé­laga. Mik­il­vægt er að setj­ast niður og ræða mörk, vænt­ing­ar og fyr­ir­ætlan­ir strax í upp­hafi. Með því að taka þátt í opnu sam­tali um til­finn­inga­legt aðgengi og hugs­an­leg­ar af­leiðing­ar sam­bands­ins er hægt að draga úr mis­skiln­ingi og hættu á til­finn­inga­legu upp­námi.

Íhugaðu að velta upp eft­ir­far­andi spurn­ing­um varðandi vænt­ing­ar til sam­bands­ins.

  • Meg­um við hitta annað fólk?
  • Þurf­um við að upp­lýsa hvort annað ef við eig­um í nánu sam­bandi við ein­hvern ann­an?
  • Hversu oft ætt­um við að eiga í sam­skipt­um?
  • Eig­um við að upp­lýsa vini okk­ar um sam­band okk­ar?

Með því að hafa þetta á hreinu al­veg frá upp­hafi er hægt að draga úr rugl­ingi og hugs­an­leg­um átök­um. Ef þér finnst óþægi­legt að tjá hugs­an­ir þínar og til­finn­ing­ar op­in­skátt við ból­fé­laga þinn gæti verið þess virði að end­ur­skoða fyr­ir­komu­lagið.

Setjið skýr­ar regl­ur

Sam­bönd á milli ból­fé­laga eru mis­mun­andi, allt frá hrein­um lík­am­leg­um tengsl­um til til­finn­inga­legra sam­skipta. Það er því mik­il­vægt að setja ákveðnar viðmiðun­ar­regl­ur og eiga op­in­ská og stöðug sam­skipti. Sér­stak­lega ef til­finn­ing­ar byrja að þró­ast eða breyt­ast. Enn betra er að ræða og ákv­arða und­ir hvaða kring­um­stæðum sam­band á milli ból­fé­laga gæti endað, jafn­vel áður en sam­bandið hefst. Þetta mun hjálpa til við að tryggja að báðir aðilar séu á sömu blaðsíðu þegar kem­ur að því að fara hvort í sína átt­ina.

Gott er að hafa eft­ir­far­andi atriði í huga og setja ákveðnar grunn­regl­ur.

  • Íhugaðu það vand­lega áður en þú hopp­ar út í slík­ar aðstæður. Hug­leiddu hvort þú sjá­ir fram á að geta slitið sam­band­inu ef þörf er á.
  • Gerðu þér grein fyr­ir til­finn­ing­um þínum varðandi slíkt sam­band og hvat­an­um til að koma á slíku sam­bandi. Gakktu úr skugga um að þú tak­ir aðeins þátt í slíku fyr­ir­komu­lagi vegna þess að það sam­ræm­ist per­sónu­leg­um gild­um þínum og löng­un­um.
  • Íhugaðu að binda enda á sam­bandið ef þú sérð að það þjón­ar ekki leng­ur til­gangi sín­um og þarf­ir þínar eru ekki upp­fyllt­ar.

Skoðið sam­bandið reglu­lega og end­ur­metið það

Eins og með öll sam­bönd er nauðsyn­legt að hugsa um til­finn­ing­ar sín­ar og til­finn­inga­legt ástand reglu­lega. Spyrðu sjálf­an þig hvort fyr­ir­komu­lagið sé enn í takt við lang­tíma­mark­mið þín. Vertu sveigj­an­leg­ur og til­bú­inn að gera breyt­ing­ar ef þörf kref­ur.

Ef þú kemst að því að fyr­ir­komu­lagið er ekki leng­ur gagn­legt eða að það hindr­ar per­sónu­leg­an vöxt þinn, gæti verið kom­inn tími til að end­ur­meta það. Ræddu áhyggj­ur þínar og til­finn­ing­ar við ból­fé­laga þinn og íhugaðu mögu­leik­ann á að breyta skil­mál­un­um eða binda enda á sam­bandið ef það þjón­ar ekki leng­ur vel­ferð ann­ars hvors aðilans.

Psychology Today

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda