Hrædd um að kynlífshljóðin hafi slæm áhrif á unglingana

Unsplash/Julia Taubitz

Kona á besta aldri hef­ur áhyggj­ur af því að hljóðin sem hún gef­ur frá sér þegar hún stund­ar kyn­líf hafi slæm áhrif á börn­in. Hún veit ekki hvað hún á að gera og leit­ar því ráða hjá sér­fræðingi.

Ég er gift kona á sex­tugs­aldri sem nýt­ur mik­ils og virks kyn­lífs. Ég fæ hins veg­ar ekki full­næg­ingu nema með mikl­um tilþrif­um, þar á meðal stun­um, djúp­um and­ar­drætti og jafn­vel gráti og hróp­um. Við hjón­in eig­um börn á ung­lings­aldri og ég hef áhyggj­ur af því að valda þeim óþæg­ind­um og verða þeim til skamm­ar. Tel­ur þú lík­legt að þau verði fyr­ir skaðleg­um áhrif­um? Og hef­ur þú ein­hver ráð til að stunda hljóðlát­ara kyn­líf?

Svar sér­fræðings­ins:

Í stað þess að reyna að kæfa nátt­úru­leg viðbrögð þín gæti verið betra að gera það sem mörg gera þegar fjöl­skyld­an er stór, finna tíma til að stunda kyn­líf þegar börn­in eru ekki heima eða finna ann­an stað fyr­ir kyn­lífið. Sum trúa því að ást eigi að vera fyr­ir­vara­laus og sjálfsprott­in og eru ekki til­bú­in til að skipu­leggja ástaratlot­in, en í raun get­ur und­ir­bún­ing­ur aukið upp­lif­un­ina.

Í þínu til­viki væri það mjög skyn­sam­legt, þar sem áhyggj­ur þínar benda til þess að þú sért far­in að blanda sam­an kyn­ferðis­legri ánægju og kvíða í sam­bandi við börn­in þín. Get­ur það á end­an­um haft nei­kvæð áhrif á kyn­ferðis­leg viðbrögð þín.

Við ákveðnar aðstæður get­ur eró­tísk upp­lif­un í raun auk­ist þegar hindr­un er til staðar, svo sem mögu­leiki á að ein­hver heyri í þér. Í þessu til­viki væri það hins veg­ar óviðeig­andi.

Al­mennt séð er það ekki slæmt fyr­ir börn að vera meðvituð um að for­eldr­ar þeirra stundi kyn­líf, en það er samt mögu­leiki á að þeim gæti liðið óþægi­lega með það, dæmt ykk­ur eða gram­ist at­hæfið ef þau kom­ast að því á rang­an hátt.

The Guar­di­an

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda