Fimm leiðir til að nota púða í kynlífinu

Pexels/ Ketut Subiyanto

Ýmsar leiðir eru til þess að auka ánægju í kyn­lífi og er notk­un á kodd­um og púðum aðeins ein leið í haf­sjó góðra ráða. Hægt er að kaupa ýmsa púða sem eru sér­stak­lega ætlaðir til notk­un­ar í kyn­lífi. Ef slík­ir púðar eru ekki við hönd­ina er hægt að nota hvaða kodda eða púða sem er í verkið.

Vefsíðan Poosh fékk kyn­lífs­fræðing­inn og jóga­kenn­ar­ann Joy Berk­heimer til koma með fimm skot­held ráð til að nota kodda til að auka ánægj­una í kyn­lífi.

Fimm leiðir til að nota kodda í kyn­lífi

  • Und­ir mjaðmirn­ar í trú­boðastell­ingu: Rétt­ir þetta úr leggöng­un­um og veit­ir mak­an­um betra aðgengi að G-blett­in­um.
  • Und­ir hnén þegar ann­ar aðil­inn er ofan á: Þetta get­ur dregið úr sveigj­unni á fót­leggj­um þess sem er ofan á, dregið úr álagi á liði og aukið þol og út­hald.
  • Und­ir maga þegar farið er inn aft­an frá: Þetta get­ur verið gott fyr­ir þau sem vilja geta komið kviðnum þægi­lega fyr­ir eða þau sem vilja ná að beygja sig dýpra fram. Ger­ir þetta mak­an­um kleift að ná dýpra inn.
  • Und­ir mjaðmir við munn­mök: Með því að lyfta mjöðmun­um upp við munn­mök hall­ast bæði mjaðmagrind­in og sníp­ur­inn bet­ur í átt að þeim sem veit­ir munn­mök­in. 
  • Und­ir mjó­b­akið í trúðboðastell­ing­unni: Með þessu ná báðir aðilar betri takti við hreyf­ing­ar hins, ásamt því að sá sem er ofan á nær dýpra inn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda