Þetta er andlegt ofbeldi

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Linda Bald­vins­dótt­ir, sam­skiptaráðgjafi og lífs­markþjálfi hjá Mann­gildi, veit sínu viti þegar sam­skipti eru ann­ars veg­ar, enda þrautreynd í fag­inu. Linda var gest­ur í Dag­mál­um á dög­un­um en þar ræddi hún um sam­skipti í nán­um sam­bönd­um sem geta bæði verið heil­brigð og eitruð í senn.

    „Þið hjón­in voruð kannski búin að tala um að skreppa í Kringl­una á laug­ar­degi eða eitt­hvað slíkt. Svo gleym­ir mak­inn því og vin­irn­ir spyrja hvort hann sé ekki til í að koma og horfa á leik með þeim á laug­ar­deg­in­um. Hann kem­ur og spyr hvort þér sé ekki sama hvort hann skreppi með strák­un­um að sjá leik­inn. Og þú svar­ar: „Jújú“ og set­ur upp svip,“ sagði Linda og setti upp raun­veru­legt dæmi um eitruð sam­skipti á milli pars í nánu sam­bandi.

    „Það hef­ur eng­um dottið það í hug að þetta er and­legt of­beldi,“ sagði hún.

    Ennþá í fýlu en seg­ir ekki neitt

    „Svo kem­ur hann heim og þá ert þú búin/​nn að byggja upp fýl­una í þér og hann skil­ur ekki neitt í neinu,“ hélt hún áfram og líkti þögn, svip­brigði og fýlu­stjórn­un í sam­skipt­um fólks við and­legt of­beldi.

    „Við erum öll að beita ein­hvers kon­ar and­legu of­beldi. En þegar það er orðið al­var­legt og þér er farið að líða inni í sam­skipt­un­um, líður eins og þú sért í fang­elsi og finnst eins og þér sé stjórnað af ann­arri mann­eskju þar sem til­finn­ing­ar þínar og til­vera er ekki virt - komdu þér þá í burtu.“

    Smelltu hér til að heyra og eða sjá þátt­inn heild sinni. 

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert

    Spurt og svarað

    húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

    sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

    einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

    endurskoðandi svarar spurningum lesenda

    Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

    hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

    svarar spurningum um lögfræðileg mál

    lýtalæknir svarar spurningum lesenda