Kristín Dóra Ólafsdóttir, listakona og kennari, giftist unnusta sínum Bjarka Benediktssyni hinn 12. ágúst síðastliðinn. Blómstrandi sköpun og skemmtilegheit voru ríkjandi hjá parinu á brúðkaupsdaginn, en þema dagsins var lífsins lukka.
Kristín Dóra, eða Kridola eins og hún er betur þekkt, deildi gleðitíðindunum á Instagram-reikningi sínum og hefur heillaóskunum rignt yfir hjónakornin síðastliðna daga. Listakonan birti glæsilega mynd af brúðhjónunum í sínu fínasta pússi og einnig skemmtilegt myndskeið sem sýnir frá undirbúningi dagsins.
Kristín Dóra birti einnig fallega myndaseríu af hjónunum um helgina í tilefni af einnar viku brúðkaupsafmæli parsins. Með á einni myndinni er sonur hjónanna, Fróði.
Smartland óskar brúðhjónunum kærlega til hamingju!