Íslandsvinkona afhjúpar leyndarmálið að góðu kynlífi

Tónlistarkonan Dua Lipa afhjúpaði á dögunum leyndarmálið að góðu kynlífi.
Tónlistarkonan Dua Lipa afhjúpaði á dögunum leyndarmálið að góðu kynlífi. Samsett mynd

Tón­list­ar­kon­an Dua Lipa af­hjúpaði á dög­un­um leynd­ar­málið að stór­kost­legu kyn­lífi. Ástar­líf Lipa hef­ur verið áber­andi í fjöl­miðlum und­an­far­in ár, en tón­list­ar­kon­an vakti mikla at­hygli í sum­ar þegar hún frum­sýndi nýju ást­ina á rauða dregl­in­um, ekki síst vegna þess að 14 ára ald­urs­mun­ur er á par­inu.

Lipa held­ur úti viku­leg­um hlaðvarpsþátt­um, en í ný­leg­um þætt­in­um opnaði hún sig um róm­an­tísk sam­bönd sín og ræddi meðal ann­ars um kyn­líf. Hún viður­kenndi í þætt­in­um að hún teldi að pör yrðu að vera full­kom­lega heiðarleg um hvað þau þurfa kyn­ferðis­lega tl að sam­band virki.  

Sam­talið sé lyk­ill­inn að góðu kyn­lífi

„Að tala ekki um kyn­líf við mann­eskj­una sem þú stund­ar kyn­líf með er und­ar­legt að mínu mati. Ég held að það sé mik­il­vægt að eiga sam­tal um kyn­líf og gefa það að umræðuefni sem við get­um talað frjáls­lega um, en þannig get­um við sleppt sekt­ar­kennd­inni og skömm­inni sem um­lyk­ur það,“ sagði Lipa.

Tón­list­ar­kon­an seg­ir leynd­ar­málið að ham­ingju­sömu sam­bandi sem end­ist vera að finna skemmt­un hvort í öðru og finna leiðir til að halda áfram að vera for­vit­inn um maka sinn.

„Svo mikið af því sem ég les um sam­bönd þessa dag­ana snýst um „her­berg­is­fé­laga­stigið“ (e. roomm­a­te phase) þar sem þér líður eins og þið búið sam­an en eruð ekki leng­ur í róm­an­tísk­um tengsl­um,“ sagði Lipa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda