5 leiðir til að fríska upp á kynlífið

kynlíf
kynlíf Ljósmynd/Unsplash

Flest pör fara í gegn­um tíma­bil þar sem kyn­lífið verður fyr­ir­sjá­an­legt og jafn­vel hálf­gerð kvöð, sér­stak­lega þegar líður á sam­bandið. Það eru marg­ir þætt­ir sem geta haft áhrif á kyn­líf fólks, en aðalástæðan fyr­ir vanda­mál­um sem tengj­ast löng­un í kyn­líf er viðvar­andi streita sem marg­ir kann­ast við úr nú­tíma sam­fé­lagi. 

Hins veg­ar er ekki þar með sagt að kyn­lífið verði aldrei aft­ur ánægju­legt og spenn­andi. Nan J. Wise, geðlækn­ir og kyn­lífs- og sam­bands­ráðgjafi, birti ný­verið grein á Psychology Today þar sem hún fór yfir nokkr­ar leiðir til að fríska upp á kyn­lífið.

1. Finndu streitu­vald­ana í lífi þínu

Rann­sókn­ir hafa end­ur­tekið sýnt fram á tengsl milli streitu og minni kyn­hvat­ar. Wise mæl­ir með því að fólk finni streitu­vald­ana í lífi sínu, til dæm­is með því að spyrja sig ein­faldra spurn­inga eins og: Hef­ur þú upp­lifað heilsu­fars­leg­ar áskor­an­ir að und­an­förnu? Vanda­mál í sam­band­inu? Breyt­ing­ar í starfi? Aukið álag heima? Hvernig líður þér?

Hún seg­ir að spurn­ing­ar sem þess­ar geti hjálpað til við að bera kennsl á og tak­ast á við streitu­vald­ana sem sé fyrsta skrefið til að fríska upp á kyn­lífið. 

2. Góð sam­skipti núm­er eitt, tvö og þrjú

Góð sam­skipti leggja grunn­inn að góðu sam­bandi, en þau leggja líka grunn­inn að góðu kyn­lífi. „Spyrðu maka þinn hvað hon­um finnst um kyn­lífið ykk­ar og vertu heiðarleg/​ur um hvað þér finnst. At­hugaðu þó að forðast ásak­an­ir og gagn­rýni,“ seg­ir Wise, en hún hvet­ur fólk til að hugsa um sam­ræðurn­ar sem tæki­færi til að bæta kyn­lífið í sam­band­inu. 

„Kannski þarftu að for­gangsraða nánd eða end­urstilla vænt­ing­ar þínar um kyn­líf. Ekki vera hrædd/​ur við að ræða fant­así­ur. Það get­ur verið ógn­vekj­andi, en þegar þú hef­ur opnað þig og deilt löng­un­um þínum gæt­ir þú upp­götvað að maki þinn hef­ur svipaðar lang­an­ir,“ bæt­ir hún við, en hún seg­ir góð sam­skipti geta kveikt neist­ann á ný og gert báða aðila spennta. 

3. Lærðu inn á mis­mun­andi stig sam­bands­ins

Í byrj­un sam­bands­ins er oft mik­il spenna og löng­un í kyn­líf. Wise seg­ir að í lang­tíma­sam­bandi sé hins veg­ar al­gjör­lega eðli­legt að kyn­líf verði nokkuð fyr­ir­sjá­an­legt og jafn­vel leiðin­legt. 

„Í sam­bandi er ekki óvenju­legt að löng­un til að stunda kyn­líf minnki eða hverfi, og sér­stak­lega fyr­ir kon­ur. Ekki taka því per­sónu­lega,“ seg­ir hún og bend­ir á að löng­un sé ekki nauðsyn­leg til að eiga gott kyn­líf.

4. Lærðu inn á kyn­ferðis­lega ánægju þína

„Það að auka getu okk­ar til kyn­ferðis­legr­ar ánægju fel­ur í sér að víkka út skil­grein­ing­una á kyn­lífi og ein­blína á víðtæk­ari merk­ingu á eró­tík,“ seg­ir Wise og bend­ir á að með því að vekja lífs­gleði okk­ar þá fyll­umst við af eld­móð til að kanna okk­ur sjálf, hvert annað og heim­inn með nýj­um aug­um. 

5. Ein­blíndu á að styrkja til­finn­inga­tengsl­in

Þegar kyn­líf verður að kvöð seg­ir Wise að það geti verið gagn­legt að taka sér hlé frá því og ein­blína á að styrkja til­finn­inga­tengsl­in við mak­ann. „Finnið leiðir til að njóta fé­lags­skap­ar hvors ann­ars án kyn­lífs. Að stunda jóga sam­an, hug­leiða eða jafn­vel að fara út í göngu­túr sam­an get­ur verið mik­il­væg­ur þátt­ur til að tengj­ast aft­ur,“ út­skýr­ir hún. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda