Hver sér um kynlífstækin þegar þú deyrð?

Sunneva Einarsdóttir, Birta Líf Ólafsdóttir og Gerður Arinbjarnardóttir ræddu um …
Sunneva Einarsdóttir, Birta Líf Ólafsdóttir og Gerður Arinbjarnardóttir ræddu um kynlífstæki í nýlegum hlaðvarpsþætti Teboðsins. Samsett mynd

Gerður Huld Ar­in­bjarn­ar­dótt­ir eig­andi Blush var gest­ur í hlaðvarpsþætti Teboðsins á dög­un­um þar sem hún ræddi ým­is­legt áhuga­vert sem teng­ist kyn­lífi, þar á meðal hver sjái um að losa þig við kyn­líf­stæk­in þegar þú deyrð.

Þátt­ur­inn, sem er í um­sjón Birtu Líf­ar Ólafs­dótt­ur og Sunn­evu Ein­ars­dótt­ur, er aðeins aðgengi­leg­ur áskrif­end­um Teboðsins, en þær birtu skemmti­lega stiklu úr þætt­in­um á In­sta­gram-reikn­ingi hlaðvarps­ins.

Með tvö­falda kommóðu und­ir kyn­líf­stæk­in

„Hafið þið séð inn á TikT­ok þar sem er alltaf verið að spyrja: „Ertu með eitt­hvað plan hver sér um kyn­líf­stæk­in þegar þú deyrð? Hver ætl­ar að eyða þeim?,“ spyr Gerður.

„Ég hugsa svo oft um þetta út frá sjálfri mér af því að ég er með svona kommóðu úr Ikea, svona Billy-kommóður eða eitt­hvað, nema ég er með svona með sex skúff­um, al­veg bara tvö­falda. Þannig að við þyrft­um eig­in­lega bara að fá eitt­hvað „team“ skil­urðu, það væri ekki ein­hver einn sem færi í gegn­um þetta og myndi losa okk­ur við þetta ef við mynd­um falla frá bæði,“ seg­ir Gerður.

„Þannig þetta væri al­veg hörku vinna. Ég þarf eig­in­lega bara að fara ráða ein­hvern í þetta verk­efni,“ bætti hún við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda