Lykillinn að fullnægingu með maka

Fullnæging þarf ekki að vera markmiðið með kynlífi.
Fullnæging þarf ekki að vera markmiðið með kynlífi. mbl.is/Thinkstockphotos

Það er ekki það sama að fá full­næg­ingu í ein­rúmi og með maka. Marg­ar kon­ur eiga í erfiðleik­um með að fá full­næg­ingu með maka. En hvað er til ráða? Kyn­lífs­sér­fræðing­ur­inn Tracey Cox tel­ur upp fjór­ar ástæður þess að kon­ur fá ekki full­næg­ingu með maka á vef Daily Mail. 

Gögn­in vinna með Cox en könn­un sýn­ir að 58 pró­sent kvenna segja stress og kvíða ástæður þess að þær fá ekki full­næg­ingu með maka. Vænt­ing­ar spila stór­an þátt í því að stress og kvíði koma upp í kyn­lífi. Hún bend­ir meðal ann­ars á að ekki sé hægt að gera ráð fyr­ir að kon­ur fái alltaf full­næg­ingu þegar þær stunda kyn­líf. 

Að ná ekki að slaka á

Cox bend­ir á að sum­ar kon­ur séu feimn­ar og ekki ná all­ar að slaka á þegar þær stunda kyn­líf, sum­ar hafa jafn­vel áhyggj­ur af út­lit­inu og hvernig þær standa sig. Aðrar eru með sjálfs­raust en ná ekki að sleppa tök­un­um. Kyn­lífs­sér­fræðing­ur­inn mæl­ir með því að kon­ur reyni að hætta að hugsa og æfi sig í nú­vit­und í kyn­lífi. 

Pressa á að fá full­næg­ingu

Full­næg­ing virðist vera hið full­komna sönn­un­ar­gagn um að kona hafi notið þess að stunda kyn­líf. Kona get­ur því fundið fyr­ir pressu frá ból­fé­laga um að fá full­næg­ingu og þá er erfiðara að fá full­næg­ingu. Stund­um snýst þetta ekki um kon­una held­ur karl­mennsku ból­fé­lag­ans og getu hans til þess að full­nægja þörf­um konu. Karl­maður­inn þarf að hætta að spyrja konu hvort hún hafi fengið það og skapa aðstæður þar sem hún þarf ekki að hafa áhyggj­ur. 

Lé­leg tækni og slæm sam­skipti

Stund­um er bólfim­in ein­fald­lega ekki nógu góð. Þá skipt­ir máli fyr­ir kon­ur að hafa sjálfs­traust og tala við maka sinn. 

Ekki búa til pressu sjálf

Það er ekki sniðugt að nálg­ast allt kyn­líf með því mark­miði að fá full­næg­ingu. Það er betra að njóta ferðar­inn­ar og sjá hvað kem­ur út úr kyn­líf­inu. Það tek­ur press­una af báðum aðilum. 

Stress kemur í veg fyrir fullnægingu.
Stress kem­ur í veg fyr­ir full­næg­ingu. mbl.is/​Thinkstockp­hotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda