Algengustu kynlífsspurningar Google

Kynlíf - margt brennur á fólki samkvæmt leitarvél Google.
Kynlíf - margt brennur á fólki samkvæmt leitarvél Google. Ljósmynd/Unsplash

Leit­ar­vél­in Google hef­ur sett fram lista yfir al­geng­ustu kyn­lífs­spurn­ing­ar sem slegn­ar voru inn árið 2023. Það sem helst brann á fólki sner­ist um ákveðna kyn­lífs­stell­ingu.

Hvað er hraðahindr­un­ar-stell­ing?

Sam­kvæmt Google þá vildi fólk helst vita hvað hraðahindr­un­ar-stell­ing­in (speed bump positi­on) er. Í stuttu máli er það þegar ein­stak­ling­ur ligg­ur á mag­an­um með kodda und­ir mjöðmum. Þannig lík­ist lík­am­inn einna helst hraðahindr­un. Talið er að fólk hafi orðið for­vitið eft­ir að raun­veru­leika­stjarn­an Tom Clare sagði það vera upp­á­halds­stell­ing­in sín, seg­ir í um­fjöll­un News.com.au.

Aðrar vin­sæl­ar spurn­ing­ar voru um hvort óhætt væri að stunda kyn­líf á meðgöngu (sem það er) og hvað ætti að fara á mörg stefnu­mót áður en stundað er kyn­líf.

Spurn­ing­arn­ar í heild sinni:

Hvað er hraðahindr­un­ar-stell­ing?

Má stunda kyn­líf á meðgöngu?

Hvað er „sex positi­vity“?

Af­hverju blæðir eft­ir kyn­líf?

Hversu mörg stefnu­mót fyr­ir kyn­líf?

Hvað brenn­ir kyn­líf mörg­um hita­ein­ing­um?

Hvenær má stunda kyn­líf eft­ir fóst­ur­lát?

Hvað eru endaþarms­mök?

Af­hverju hef ég enga kyn­lífslöng­un kona?

Hvernig er kyn­líf fiska?

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda