Hvað er til ráða ef konan vill ekki kynlíf?

Theodór Francis Birgisson segir að fólk í sambandi verði að …
Theodór Francis Birgisson segir að fólk í sambandi verði að geta talað um kynlíf sitt. Samsett mynd

Theo­dór Franc­is Birg­is­son, klín­ísk­ur fé­lags­fræðing­ur hjá Lausn­inni, svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hann spurn­ingu frá manni sem er ósátt­ur við konu sína. 

Hæ. 

Ég og kon­an mín erum búin að vera gift í 22 ár. Við stund­um kyn­líf á 3 mánaða fresti. Þegar ég tek utan um hana seg­ir hún mér að láta sig í friði. Ég þarf alltaf að segja við hana taktu utan um mig því hún ger­ir það ekki á sjálf­dáðu. Hún seg­ir mér að henni finn­ist það vont og hún hafi ekki áhuga. Hún seg­ir líka við mig að kyn­líf sé ekki mik­il­vægt. Ég er að spyrja mig hvort ég hafi gert eitt­hvað á henn­ar hlut. Ég veit ekki hvað ég tolli lengi í þessu sam­bandi. Stund­um lang­ar mig að halda fram­hjá henni því ég þarf kyn­líf og vænt­umþykju sem ég fæ ekki frá henni. Hvað á ég að gera? 

Kveðja,

B

Ljós­mynd/​Unsplash

Sæll og blessaður og takk fyr­ir þessa spurn­ingu.

Mig tek­ur sárt að heyra að þetta sé staðan hjá ykk­ur og ég skil vel að þú sért leiður og dap­ur yfir þessu ástandi. All­ir af okk­ar teg­und (Homo sapiens) eru kyn­ver­ur og hafa að upp­lagi þörf á kyn­lífi. Það er hins veg­ar gríðarlega hátt hlut­fall para sem á í ein­hvers­kon­ar erfiðleik­um með kyn­líf sitt.

Þau sem eiga ekki erfitt með kyn­líf eiga það sam­eig­in­legt að þau tala um kyn­líf sitt. Mín fyrsta spurn­ing til þín er því, hversu oft talið þið um kyn­líf og hafið þið rætt um hvað kveik­ir kyn­löng­un þína og henn­ar.

Mörg pör sem ég hef hjálpað í gegn­um starfs­fer­il minn vita ekki svarið við þess­ari ein­földu spurn­ingu. Ef ég veit ekki hvað kveik­ir í maka mín­um þá er býsna ólík­legt að mér tak­ist að vekja hjá henni áhuga á kyn­lífi.

Ef maki minn veit ekki sjálf hvað kveik­ir í henni þá er afar ólík­legt að ég viti það. Sam­tal er því nauðsyn­legt. Þegar kom­in er upp staða eins og hjá ykk­ur myndi ég óhikað segja að þið þurfið ut­anaðkom­andi hjálp.

Ég myndi því ráðleggja ykk­ur að leita ráðgjaf­ar hjá viður­kennd­um sam­talsmeðferðar aðila (e. Therap­ist) þar sem þið mynduð meðal ann­ars fá spegl­un á hvað veld­ur því að kon­an þín hef­ur ekki áhuga á kyn­lífi. Þar geta verið bæði líf­fræðileg­ar ástæður eða til­finn­inga­leg­ar. Í lang­flest­um til­fell­um er hægt að laga ástandið hver sem upp­runi vand­ans er. Með von um að þetta hjálpi þér og þá ykk­ur báðum.

Kær kveðja,

Theo­dór

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Theo­dór spurn­ingu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda