Sleppi ég að tala við pabbann og stjúpmömmuna?

Theo­dór Franc­is Birg­is­son svarar spurningu frá móður fermingarbarns.
Theo­dór Franc­is Birg­is­son svarar spurningu frá móður fermingarbarns. Samsett mynd

Theo­dór Franc­is Birg­is­son, klín­ísk­ur fé­lags­fræðing­ur hjá Lausn­inni, svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér svar­ar Theo­dór móður sem er að und­ir­búa ferm­ingu dótt­ur sinn­ar. 

Sæll.

Ég er að fara ferma dótt­ur mína í vor. Hún á pabba og stjúp­móður og svo er ég gift og hún á því stjúp­föður líka en við for­eldr­arn­ir höf­um ekki verið sam­an síðan hún fædd­ist. Sam­skipt­in voru ekki alltaf góð á milli okk­ar for­eldr­anna þegar hún var yngri en sem bet­ur fer hef­ur það lag­ast, en sam­skipt­in snú­ast al­farið um dótt­ur­ina, eru í lág­marki en af virðingu.

Núna eru þau að fara koma í ferm­ing­una og fjöl­skyld­ur þeirra. Þar á meðal fjöl­skylda stjúp­móður­inn­ar og það er mér svo mik­il­vægt að þeim finn­ist þau öll vel­kom­in og við séum ánægð að þau komi en ég vil held­ur ekki vera „of mikið“ eða að þeim finn­ist þau þvinguð í þess­um aðstæðum.

Hvernig get ég látið þeim líða vel, liðið vel sjálf og um­fram allt að dótt­ir mín upp­lifi dá­sam­leg­an dag með öllu sínu nán­asta fólki ? Sest maður niður og spjall­ar eða sleppi ég al­veg að tala við þau?

Með von um svar,

ferm­ing­armamma. 

Fermingar geta verið flóknar í samsettum fjölskyldum.
Ferm­ing­ar geta verið flókn­ar í sam­sett­um fjöl­skyld­um. Ljós­mynd/​Colour­box

Sæl og blessuð og takk fyr­ir þessa spurn­ingu.

Ferm­ing­ar­dag­ur barns er einn af stærstu dög­um í lífi þeirra sem ferm­ast. Vænt­inga­stjórn­un er nauðsyn­leg í svona stór­um mál­um þannig að mik­il­væg­ast er að byrja á að hlusta eft­ir því hvaða vænt­ing­ar barnið hef­ur til dags­ins. Þegar það ligg­ur fyr­ir hvað barnið ósk­ar sér væri síðan mik­il­vægt að all­ir for­eldr­ar sem koma að dótt­ur þinni hitt­ist fyr­ir ferm­ing­una og ráði ráðum sín­um. Á þeim fundi er mjög gott að fara yfir vænt­ing­ar barns­ins og hvernig all­ir for­eldr­ar henn­ar geta á sem best­an hátt mætt þeim vænt­ing­um.

Að sjálf­sögðu er líka mik­il­vægt að vænt­ing­ar allra for­eldra heyr­ist þannig að það séu ekki nein­ir eft­ir­mál­ar eft­ir ferm­ing­una um að ein­hverj­um hafi fund­ist eitt­hvað fara ekki nógu vel. Ef ykk­ur finnst vand­ræðal­egt að hitt­ast á slík­um fundi fyr­ir ferm­inga þá verður ekk­ert minna vand­ræðal­egt að hitt­ast í ferm­ing­unni sjálfri. Ef ekki ligg­ur fyr­ir hvaða vænt­ing­ar all­ir bera til dags­ins er mjög auðvelt að verða kvíðinn og stressaður fyr­ir deg­in­um. Mál sem þessi leys­ast oft­ast um leið og fólk fer að tala sam­an.

Með von um að þetta hjálpi ykk­ur.

Kær kveðja,

Theo­dór

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Theo­dór spurn­ingu HÉR.

Theo­dór Franc­is Birg­is­son.
Theo­dór Franc­is Birg­is­son. Ljós­mynd/​Helga Guðrún Lár­us­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda