Lífið er ástarsaga

Linda Baldvinsdóttir markþjálfi hjá Manngildi.
Linda Baldvinsdóttir markþjálfi hjá Manngildi. mbl.is/Árni Sæberg

Linda Bald­vins­dótt­ir lífsþjálfi og sam­skiptaráðgjafi hjá Mann­gildi skrif­ar um sálfs­ást og bend­ir á hvað fólk geti gert til þess að eiga betra líf.  

Ég held að við hugs­um alltof lítið um það hversu mik­il gjöf lífið sjálft er og ég held að við átt­um okk­ur stund­um ekki á því að við erum að skrifa okk­ar eig­in ástar­sögu dag hvern.

Þau inni­halds­efni sem við þurf­um ef við ætl­um að hafa sög­una okk­ar fal­lega og þess virði að hún sé les­in af okk­ur og öðrum eru all mörg og hér eru nokk­ur þeirra;

Sjálfs­ást: Þegar ég tala um sjálfs­ást þá er hún langt frá því að vera eig­in­girni eins og sum­um finnst þetta orð þýða. Heil­brigð sjálfs­ást er hins veg­ar þannig að við hugs­um um okk­ur og reyn­um að vera eins heil­brigð til anda sál­ar og lík­ama eins og hægt er.

Sjálfs­ást­in spegl­ast líka í hrein­læti, fæðuvali, um­hugs­un um út­lit okk­ar og fram­komu gagn­vart ná­unga okk­ar. Sjálfs­ást­in veit einnig að til að spegla hana þurf­um við dass af sjálfsmildi og klappi á öxl þegar við höf­um ekki náð að birta okk­ar bestu hug­mynd um okk­ur sjálf.

Sjálfs­ást­in er for­senda þess að geta elskað aðra, því að ef við get­um ekki elskað okk­ur og það líf sem við lif­um þá erum við ekki fær um að gefa heil­brigða ást til um­hverf­is okk­ar. Við get­um ekki gefið það sem við eig­um ekki heilt í brjósti okk­ar.

Sjálfs­ást­in er samn­ing­ur um heil­brigði og kær­leika á milli þín og lífs­ins - þín eig­in ástar­saga, þinn samn­ing­ur við þig.

Virðing: Þegar við höf­um gert okk­ur fulla grein fyr­ir því að lífið er gjöf sem ber að há­marka virðið á þá mun­um við bera ann­ars­kon­ar virðingu fyr­ir því. Virðingu sem fyll­ir brjóst okk­ar og við ger­um okk­ur grein fyr­ir því að þetta örfína efni sem lífið er búið til úr þarf um­hyggju og alúð. Það fel­ur í sér að við lát­um ekki aðra koma illa fram við okk­ur og við ger­um það held­ur ekki sjálf. Við lif­um í þakk­læti og stöðugri um­hyggju fyr­ir okk­ur, nátt­úr­unni og líf­inu í heild. Við samþykkj­um og virðum okk­ur sama á hvaða stað við erum í líf­inu og við fyr­ir­gef­um okk­ur sjálf­um fyr­ir okk­ar mann­leg­heit og mis­tök.

Tryggð/​ábyrgð: Við ber­um ábyrgðina sem felst í frels­inu og við sköp­um okk­ur og líf okk­ar upp á nýtt hvern dag. Við ber­um ábyrgð á líðan okk­ar og þar með hugs­un­um okk­ar(innra sjálfstal)og tíðninni sem við gef­um út í um­hverfi okk­ar.

Við yf­ir­gef­um okk­ur ekki og flýj­um í heim fíkn­ar af ein­hverju tagi held­ur erum til staðar í okk­ar eig­in lífi og ber­um ábyrgð á til­finn­ing­um okk­ar hverju sinni. Þannig sýn­um við okk­ur sjálf­um og líf­inu tryggð okk­ar. Við ber­um sam­fé­lags­lega ábyrgð gagn­vart fjöl­skyldu okk­ar, ná­unga okk­ar ásamt jörðinni allri og um­göng­umst allt með kær­leik­ann að vopni.

Marka­setn­ing: Við setj­um mörk fyr­ir líf okk­ar og fram­komu þeirra sem við erum í um­gengni við. Við leyf­um ekki of­beldi gagn­vart okk­ur og við þurf­um ekki að segja já þegar við mein­um nei. Við setj­um mörk gagn­vart orðum og at­höfn­um sem ekki eru virðinga­verð og eða fal­leg og við neit­um að verða fórn­ar­lömb, en för­um þess í stað í sig­ur­veg­ar­ann því það að setja okk­ur sjálf­um og öðrum mörk sem vernda okk­ur gegn of­beldi og niður­broti á virði okk­ar. 

Við virðum drauma­sýn­ir okk­ar: Við virðum drauma okk­ar því að þeir segja til um það hvernig lífi við vilj­um lifa. Draum­arn­ir geta einnig aðstoðað okk­ur við að ná þeim ár­angri sem við vilj­um sjá raun­birt­ast.

Allt sem þú hef­ur núna var ein­hvern­tím­ann draum­ur þinn með ein­hverj­um hætti (líttu bara á líf þitt)hvort sem sá draum­ur hef­ur orðið þér til góðs eða ills og skapaðu nýtt ef þú ert ekki ánægður með ár­ang­ur­inn.

Við erum mátt­ug­ir skap­ar­ar og orð okk­ar og draum­sýn­ir eru töfra­sprot­arn­ir okk­ar ásamt fram­kvæmd­inni og þeim skref­um sem taka þarf í átt­ina að því að sjá draum­ana ræt­ast. „Just do it“ sagði Nike og ég end­ur­tek það bara hér - „just do it“ og náðu í það líf sem þú raun­veru­lega vilt lifa. 

Að standa með sér: Við skul­um virða viðhorf okk­ar, gildi og skoðanir og láta eng­an gera lítið úr þeim því að sam­an mynda þessi atriði per­sónu­gerð okk­ar. Dett­um þó ekki í þann pytt að halda að okk­ar skoðun sé sann­leik­ur­inn all­ur því að skoðun er ein­ung­is sprott­in frá okk­ur sjálf­um og því hvernig við sjá­um og upp­lif­um heim­inn. Það að standa með sér þýðir að við lát­um ekki breyta okk­ur í þágu pop­ul­isma né för­um í meðvirkni með þeim sem vilja stjórna skoðunum okk­ar lífi og líðan. Stönd­um með okk­ur alla leið ef hjarta okk­ar hef­ur talað okk­ar innsta sann­leika.

(Sem þarf ekki að vera sann­leik­ur annarra)

Að efla okk­ur til dáða og fræðslu: Við ætt­um að vera okk­ar trygg­ustu klapp­stýr­ur og hvetja okk­ur á stund­um þar sem reyn­ir á hug­rekki okk­ar og seiglu. Þegar við stönd­um upp sterk­ari eft­ir mis­tök og erfiðleika lífs­ins þá er það því að þakka að við höf­um lært að elska okk­ur án sí­felldra skil­yrða fyr­ir þeirri ást. Það ger­ist ekki án meðvit­und­ar og því að vaxa til þekk­ing­ar og kær­leika ásamt því að það krefst ferðalags fiðrild­is­ins út úr púp­unni. Þegar við höf­um kom­ist til þekk­ing­ar á okk­ur þá kvikn­ar oft auk­inn áhugi okk­ar á því að fræðast um til­ver­una í heild sinni og með því að fræðast opn­ast mögu­leiki okk­ar til skiln­ings á mis­mun­andi menn­ingu,skoðunum og lífs­vegi manna og það get­ur leitt okk­ur til vegs friðar og umb­urðarlynd­is, og það að mínu mati er sú leið sem okk­ur var ætlað að feta þar til að við höf­um skapað himna­ríki í okk­ur sjálf­um og heim­in­um öll­um.

Að lok­um: Að vaxa upp til ást­ar á okk­ur, nátt­úr­unni og líf­inu mynd­ar þannig grunn að því að við get­um heilað heim­inn fyr­ir kom­andi kyn­slóðir og það er held­ur bet­ur verðugt verk­efni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda