5 ástæður fyrir því að eiginmaðurinn vill ekki stunda kynlíf

Kynhvöt fólks er misjöfn.
Kynhvöt fólks er misjöfn. mbl.is/Thinkstockphotos

Af hverju hef­ur eig­inmaður ekki áhuga á að stunda kyn­líf með eig­in­konu sinni? Ástæðurn­ar eru fjöl­marg­ar en ástæðan er lík­lega ekki sú að hann er hætt­ur að elska eig­in­konu sína og byrjaður að halda fram hjá?

Kyn­lífs­fræðing­ur­inn Tracey Cox fór yfir nokkr­ar ástæður sem gætu legið að baki í pistli á vef Daily Mail. 

Ris­vanda­mál

Ef maður­inn er kom­inn yfir fimm­tugt finnst Cox ekki ólík­legt að ástæðan sé ris­vanda­mál. Hún seg­ir karl­menn gera ráð fyr­ir að fá skalla og bumbu en minna er talað um ris­vanda­mál. Karl­menn finna oft fyr­ir skömm og vilja kom­ast hjá því að stunda kyn­líf. 

Ekki eins aðlaðandi og áður

Það er mikið rætt um kven­lík­amann og hug­mynd­ir um hvernig fal­leg kona lít­ur út. Karl­menn finna líka fyr­ir pressu um að vera aðlaðandi. Ef þeir þyngj­ast, vöðvarn­ir rýrna eða hárið þynn­ist breyt­ist sjálfs­mynd­in mögu­lega. Karl­menn geta fundið fyr­ir dep­urð þegar þetta allt ger­ist og upp­lifa sig ekki mjög aðlaðandi. 

Lít­il kyn­hvöt

Cox bend­ir á að á tveim­ur tíma­punkt­um í para­sam­bönd­um minnk­ar löng­un fólks í kyn­líf, ann­ars veg­ar eft­ir tveggja ára langt sam­band og hins veg­ar þegar fólk eign­ast börn. Fólk get­ur þó viðhaldið góðri kyn­hvöt með því að stunda reglu­lega kyn­líf. Staðalí­mynd­in seg­ir að karl­menn eigi að vilja stunda meira kyn­líf en kon­ur en það er þó ekki rétt. Cox bend­ir meðal ann­ars á að kyn­hvöt­in farið að hluta til eft­ir genum. 

Finnst hann vera góður með að sleppa kyn­lífi

Eig­inmaður gæti ómeðvitað talið sig vera að hlífa eig­in­konu sinni með því að sleppa kyn­lífi. Á þetta til að mynda við ef hann ólst upp á heim­ili þar sem faðir hans hélt mikið fram hjá eða ef komið var illa fram við móðir hans af karl­mönn­um.  

Stress og þung­lyndi

Cox bend­ir á rann­sókn sem sýn­ir fram á að menn finni fyr­ir minni kyn­hvöt þegar þeir finna fyr­ir stressi í tengsl­um við vinnu. Í staðinn drekka þeir kannski áfengi sem minnk­ar aft­ur kyn­hvöt­ina. Þessu get­ur fylgt þung­lyndi og mögu­lega lyf vegna þess. Allt þetta get­ur haft áhrif á kyn­hvöt­ina. 

Af hverju vill hann ekki stunda kynlíf?
Af hverju vill hann ekki stunda kyn­líf? mbl.is/​Thinkstockp­hotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda