Ingjaldur bannaði allt og beitti ofbeldi

Gígja Skúladóttir er gestur Tinnu Barkardóttur í hlaðarpsþættinum Sterk saman.
Gígja Skúladóttir er gestur Tinnu Barkardóttur í hlaðarpsþættinum Sterk saman.

Gígja Skúladóttir er fertug móðir, dóttir og eineggja tvíburi úr Reykjavík. Eftir að hafa lent út af sporinu var hún send á unglingaheimili sem átti eftir að draga dilk á eftir sér. Hún segir Tinnu Barkardóttur, sem heldur úti hlaðvarpinu Sterk saman, sögu sína. 

Gígja og Brynja, tvíburasysturnar, voru uppátækjasamar og létu hafa fyrir sér. Þegar þær voru sjö ára skildu foreldrar þeirra og Gígja varð meira hjá föður sínum.

„Það var oft mikið að vera með okkur báðar og ég varð meiri pabbastelpa,“ segir Gígja. 

Þegar Gígja var ellefu ára lést eldri bróðir þeirra eftir að hafa lent undir rútu og verið á spítala í níu mánuði.

„Þetta var rosalega erfitt og það kunni enginn að takast á við þetta. Þarna sá ég pabba minn hverfa inn í sig og við systur fórum að sýna áhættuhegðun, stela og svona til að fá athygli,“ segir hún. 

Fóru að nota vímuefni

Á ákveðnum tímapunkti komu vímuefni til sögunnar og þær fóru að fikta.

„Við vorum sendar á unglingaheimili, fyrst Brynja og svo ég,“ segir Gígja. 

Hvers vegna var Brynja send á undan þér?

„Ég var líklega aðeins lúmskari með þetta en það komst upp og var send á eftir henni,“ segir hún. 

Það voru hjón sem sáu um heimilið. Maðurinn, Ingjaldur, réð og beitti miklu ofbeldi, andlegu og líkamlegu. Hann braut stelpurnar markvisst niður, kallaði þær druslur, stjórnaði klæðnaði, samskiptum þeirra á milli og milli stelpna og forráðamanna.

„Við sem vorum á Laugalandi máttum ekki verða nánar vinkonur, hann passaði upp á það og kom upp á milli með samskiptabanni eða búa til leiðindi. Við máttum ekki mála okkur, þau notuðu trúarlegt ofbeldi og kirkjuna til að hóta okkur og skikka til,“ segir hún.

Ingjaldur hlustaði á símtalið

Þegar stelpurnar fengu vikulega símtalið til foreldra sína var hlustað á samtalið til þess að passa upp á hvað færi fram.

Gígja segir það hafa verið mikinn styrk að hafa systur sína með sér því þær stóðu alltaf saman. Þær voru á þessu heimili, í þessum ömurlegu aðstæðum í tvö ár.

„Við systur fórum í fóstur til yndislegra hjóna sem voru í kirkjunni. Brynja systir féll eftir einhvern tíma og var send til baka. Ég átti að fara til baka líka en ég hringdi í Braga Guðbrandsson og færði rök fyrir því að systur ættu ekki að vera saman.“

Þessar stelpur áttu ekki von

Gígja, eins og allar stelpurnar, kom mjög brotin út úr kerfinu. Flestar enduðu í ofbeldissamböndum og fengu þær aldrei aðstoð við að vinna úr því ofbeldi sem kerfið olli. Árið 2021 steig Gígja fram ásamt systur sinni til þess að vekja athygli á þessu máli og afleiðingunum sem það hafði.

„Ásmundur, ráðherra, bað sérstaklega um að fá þetta mál til sín og setja af stað rannsókn. Hann braut persónuverndarlög með því að hundsa fyrirmæli þeirra við framkvæmd rannsóknarinnar.

Við, sem rannsóknin fjallaði um, vildum viðurkenningu á því sem við þurftum að þola og að einhver tæki ábyrgð. Okkur fannst mikilvægt að komið væri fram við okkur af virðingu og við fengjum sálræna aðstoð en enn þann dag í dag hefur enginn tekið ábyrgð og enginn boðið þessum konum aðstoð eða skaðabætur,“ segir hún. 

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál