Sprenging í hjónaskilnuðum í janúar

Klíníski sálfræðingurinn Ziba Graham Jr. mælir með að pör kynni …
Klíníski sálfræðingurinn Ziba Graham Jr. mælir með að pör kynni sér heilræði í nýjustu bók hans: Fix Your Marriage Without Counseling. Afif Ramdhasuma/Unsplash

Fleiri pör sækja um skilnað í janú­ar en á nokkr­um öðrum tíma árs­ins. Ziba Gra­ham Jr., klín­ísk­ur sál­fræðing­ur, seg­ir fyrsta mánuð árs­ins einnig kjör­inn til að gera já­kvæðar breyt­ing­ar á hjóna­band­inu. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Peyt­on Fergu­son
Ascot Media Group.

Gra­ham er höf­und­ur bók­ar­inn­ar Fix Your Marria­ge Wit­hout Coun­sel­ing sem er sögð geta aðstoðað pör við að halda í heit­in og styrkja sam­bandið á nýju ári. 

Þau pör sem hafa þegar kom­ist í gegn­um hátíðar­tíma­bilið í des­em­ber og fram yfir nýja árið geta prísað sig sæl því sam­kvæmt Doyle Law Group fer hæsta hlut­fall skilnaðar­um­sókna fram dag­ana 12.-16. janú­ar ár hvert.

Á hverju ári fjölg­ar slík­um um­sókn­um um þriðjung.

Hafi atóm­bombu ekki verið varpað fyr­ir miðjan janú­ar geta pör notað tím­ann í byrj­un árs til að hefja vinnu við að halda í þráðinn sem hef­ur verið óslit­inn – mögu­lega far­inn að verða snjáður – frá gift­ingu, að sögn Gra­hams. 

Í áður­nefndri bók Gra­hams er að finna sann­reynd­ar aðferðir við að halda í neist­ann og hvernig styrkja eigi sam­bandið, hvort sem það þurfi smá­vægi­leg­ar lag­fær­ing­ar eða meiri­hátt­ar yf­ir­haln­ingu.

Mark­mið bók­ar­inn­ar seg­ir Gra­ham vera að fækka hjóna­skilnuðum sem geti oft á tíðum splundrað heilu fjöl­skyld­un­um. Hann a.m.k. ráðlegg­ur pör­um að nýta heil­ræðin sem bók­in hef­ur að geyma áður en ráðist er í fjár­fest­ingu í hjóna­bands­ráðgjöf. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda