Viktor Gísli sendi Jennýju Fjólu hjartnæma kveðju

Viktor Gísli og Jenný Fjóla.
Viktor Gísli og Jenný Fjóla. Skjáskot/Instagram

Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, fer ekki leynt með ást sína á kærustu sinni, Jennýju Fjólu Ólafsdóttur, í hjartnæmri afmæliskveðju sem hann birti á Instagram-síðu sinni í gær.

„Uppáhalds manneskjan mín 25 í dag, ég elska þig,“ skrifaði Viktor Gísli við fallega myndaseríu af parinu.

Jenný Fjóla er helsta klappstýra Viktors Gísla og hvatti hann til dáða úr áhorfendastúkunni á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla í Zagreb.

Hún ræddi við blaðamann mbl.is fyrir leik Íslands og Króatíu síðastliðinn föstudag og fór fögrum orðum um sinn heittelskaða.

„Það er geðveikt að fylgjast með honum. Ég er svo stolt af honum. Það er yndislegt hvað hann er búinn að vera góður og það er geðveikt að heyra nafnið hans þegar hann ver vel. Það er miklu skemmti­legra að vera í stúk­unni og allt öðru­vísi.

Það er ekki eins gam­an að vera heima í sóf­an­um og sér­stak­lega þegar stemn­ing­in hjá Íslend­ing­un­um er svona rosa­lega góð,“ sagði Jenný Fjóla.

Viktor Gísli og Jenný Fjóla hafa verið saman um nokkurra ára skeið, en þau kynntust á táningsaldri þegar þau stunduðu nám við Verzlunarskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda