Leitin að ástinni getur verið snúin, sérstaklega í hröðum og síbreytilegum heimi. Til að auðvelda landanum leitina hefur Smartland tekið saman lista yfir glæsilegustu einhleypu konur Íslands.
Flestir þekkja Áslaugu Örnu, þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem nú berst um að verða næsti formaður flokksins. Áslaug er metnaðarfull og efnileg kona sem leggur mikið upp úr því að vera vel til höfð og fín til fara, bæði í starfi og einkalífi.
Söngkonan Bríet er ein vinsælasta tónlistarkona landsins, þekkt fyrir að semja hvern smellinn á fætur öðrum og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir list sína. Að undanförnu hefur hún haldið sig fjarri sviðsljósinu og einbeitt sér að lagasmíðum í rólegheitum sveitakyrrðarinnar.
Gyða Dan er stórglæsileg flugfreyja hjá Icelandair og jógakennari með fjölbreyttan og glæsilegan starfsferil að baki. Hún hefur meðal annars starfað sem rekstrarfulltrúi hjá 365, flugfreyja hjá Air Atlanta og unnið hjá Hreppmjólk, svo fátt eitt sé nefnt. Gyða er mikil ævintýrakona, smart og lifir lífinu til fulls.
Hrafnkatla er á lokametrunum í námi við Listaháskóla Íslands og starfar í fataverslun. Hún hefur síðustu mánuði unnið hörðum höndum að því að láta drauminn rætast – að opna Pons Vintage, barnafataverslun með einstakan sjarma.
Lífskúnstnerinn Guðný Björk Halldórsdóttir er óhrædd við að fara sínar eigin leiðir. Hún hefur búið í Danmörku um nokkurra ára skeið en er nú flutt aftur til Íslands þar sem hún nýtur lífsins til fulls.
Sóley Bára Þórunnardóttir er ung, glæsileg og hæfileikaríkur dansari sem hefur notið mikillar athygli á sviðinu. Hún var meðal annars dansari á fimm tónleikum með Iceguys, sem fylltu Laugardalshöllina í desember síðastliðnum. Sóley er sannkölluð stemningskona sem elskar að dansa, vera á sviði og fyrir framan myndavélina. Um þessar mundir er hún í heimsreisu með vinkonu sinni og nýtur lífsins til fulls, en í haust stefnir hún á nám í sálfræði.
Sonja Valdín, betur þekkt sem Sonja Story, var ein stærsta Snapchat-stjarna landsins á sínum tíma. Hún hefur leikið í kvikmynd, tekið þátt í Söngvakeppninni og er nú í flugfreyjunámi hjá Icelandair, þar sem hún stefnir á nýtt og spennandi ævintýri.