Grínistinn Ari Eldjárn og Tinna Brá Baldursdóttir, framkvæmdastjóri hönnunarverslunarinnar Hrím, fagna tveggja ára sambandsafmæli í dag.
Ari birti fallega mynd af parinu á Facebook-síðu sinni í tilefni dagsins.
„Tvö ár með þessari í dag,“ skrifaði hann við færsluna.
Smartland greindi frá sambandi þeirra Ara og Tinnu Brár í apríl 2023.
Smartland óskar þeim innilega til hamingju með áfangann!