Þetta er það sem hárgreiðslumeistarinn þráir að segja þér

Hárgreiðslufólk veit hvað það syngur.
Hárgreiðslufólk veit hvað það syngur. Unsplash.com/Eugene

All­ir hafa velt því fyr­ir sér hvað hár­greiðslu­fólk er að hugsa meðan það snyrt­ir á manni hárið. Vef­ritið The Styl­ist fór á stúf­ana og spurði hár­greiðslu­fólk hvað það er í raun­inni að hugsa meðan það klipp­ir hár.

„Ég elska það þegar fólk vill ekki spjalla“

„Ég finn það alltaf þegar kúnn­inn vill ekki spjalla. Svör­in verða mjög stutt og það er í góðu lagi. Ég elska þögn­ina því þá get ég ein­beitt mér,“ seg­ir hár­greiðslu­meist­ari.

Hættu að hreyfa höfuðið!

„Sem há­greiðslumaður þá þarf maður stöðugt að gæta þess að höfuðið sé beint á meðan maður er að klippa það. Ef skjól­stæðing­ur er stöðugt á iði þá trufl­ar það flæðið og maður þarf sí­fellt að vera að stilla höfuðið af. Sum­ir eiga það til að vera alltaf að hreyfa höfuðið á meðan það tal­ar. Ef maður er að klippa af mik­illi ná­kvæmni þá verður þetta mjög erfitt. Fólk verður bara að vera kj­urrt.“

Stutt klipp­ing hæf­ir ekki nef­inu

„Ef sum­ir hafa stórt nef eða mikla höku þá ætti það að forðast hina svo­kölluðu „bob“ klipp­ingu. Þar sem hún ýkir alla kanta. Sama ef maður er með of litla höku. Ég reyni að stýra slíku fólki frá þeirri hár­greiðslu en get aldrei sagt þeim ástæðuna.“

Það sést ef þér lík­ar út­kom­an

„Ég sé það alltaf á fólki ef þeim lík­ar út­kom­an. Aug­un tendr­ast ef þeim lík­ar út­litið. Þeir sem hata klipp­ing­una hafa mjög dauf augu.“

Ég vil ekki snerta skít­ugt hár

„Ég vil helst ekki þurfa að snerta skít­ugt hár. Mættu vin­sam­leg­ast í klipp­ingu með hreint hár.“

Mér er sama þótt þú sért í sím­an­um

„All­ir eru upp­tekn­ir og ég skil það að fólk vilji ná að svara tölvu­póst­um meðan það er í klipp­ingu. Það er kúnn­inn sem er að borga þannig að hann ræður hvort hann sé í sím­an­um eða ekki. Kem­ur mér ekki við.“

Ef þú ert stöðugt að taka slæm­ar ákv­arðanir

„Ég þurfti að hætta að taka að mér eina sem kom heim til mín því hún var stöðugt að lita á sér hárið sjálf með hræðileg­um af­leiðing­um. Svo kom hún til mín grát­andi af eft­ir­sjá og ég fékk að lok­um nóg. Ég sagði henni að ef hún héldi þessu áfram væri ég hætt að sinna henni. Hún hélt að ég væri að grín­ast. En næst þegar þetta gerðist þá sagðist ég vera hætt að taka að mér kúnna heima. Ég bara þoli ekki að hlusta á væl yfir því sem fólk ger­ir vilj­andi.“

Hafðu lokuð aug­un

„Það er mjög skrítið að gefa fólki höfuðnudd meðan augu þeirra eru opin. Slakið bara á og lokið þeim.“

Alltaf spurn­ing um viðhald

„Ég spyr alltaf mikið um hversu mik­inn tíma fólk hef­ur til að viðhalda hár­inu. Á mann­eskj­an börn, er hún alltaf á þönum o.s.frv. og gef þeim klipp­ingu sem hæf­ir lífs­stíln­um.“

Ekki mæta snemma

„Fæst­ir koma seint. En ég vil bara að fólk mæti stund­vís­lega. Ekki snemma. Ekki koma tutt­ugu mín­út­um fyrr. Þá er ég kannski í kaffipásu og fæ sam­visku­bit að vera að borða sam­lok­una mína.“

Mættu með þína bestu greiðslu

„Það er frá­bært ef hárið lít­ur út eins og þú vilt helst hafa það á góðum degi. Þá sé ég hvernig það er að virka fyr­ir þig og gef þér klipp­ingu í sam­ræmi við það. Frek­ar en ef þú mæt­ir með það í hnút, þá sé ég ekki hvernig það leggst til.“

Þú átt að þiggja höfuðnuddið

„Ég vil að fólk þiggi höfuðnuddið því það þýðir að þeim líður vel hjá mér. Ef ein­hver afþakk­ar þá skil ég það en það seg­ir manni þó að þeim líður eitt­hvað illa með snert­ingu.“

Ég kvíði því að greiða úr flækj­um

„Ef skjól­stæðing­ur­inn hef­ur ekki þvegið hárið þá kvíði ég að greiða í gegn­um það. Það get­ur tekið lang­an tíma.“

Ekki tala á meðan ég blæs hárið

„Það er erfitt að heyra þegar maður er að blása hár. Og maður vill alls ekki vera á hár­greiðslu­stofu þar sem all­ir eru að kalla.“

Ég hlakka til að sjá vöxt­inn

„Mér finnst það mjög gef­andi þegar fólk hirðir vel um hárið á milli tíma og fer eft­ir leiðbein­ing­um mín­um.“

Ekki hlusta á TikT­ok

„Það eru ótrú­lega marg­ir sem koma og segj­ast hafa hætt að þvo hárið vegna þess að ein­hver á TikT­ok mælti með því og full­yrti að hár­nær­ing væri nóg. Það er rangt. Hárið verður fyr­ir meng­un alla daga. Það þarf að þvo það. Ég furða mig oft á því hvað fólk er heimskt. All­ir verða líka furðulostn­ir að heyra að það þarf að þvo hár tvisvar til þris­var í viku. Eins mun rós­marín olía ekki flýta fyr­ir hár­vexti. Það þarf alltaf að leita til sér­fræðinga varðandi slík úrræði.“

Segj­ast vilja til­breyt­ingu

„Fólk seg­ist vilja breyta til en halda samt sídd­inni og vilja ekki fá stytt­ur í hárið. Þá veit ég ekki hvað ég get gert fyr­ir það.“

Ekki kvarta yfir verðinu

„Sum­ir elska hvað ég geri fyr­ir hárið þeirra en kvarta svo alltaf yfir því hvað þetta kost­ar. Það eyðilegg­ur stemm­ing­una. Ég gef sann­gjarnt verð fyr­ir mína vinnu miðað við hversu hæf ég er og með marga mik­il­væga kúnna. Ég gæti rukkað miklu meir og ég er ekki að þvinga neinn að koma til mín.“

Þú átt að segja ef þér mis­lík­ar klipp­ing­in

„Ef þú seg­ir ekk­ert þá get ég ekki lagað það. Ég þarf að skilja hvað er hægt að gera öðru­vísi. Ann­ars mun þetta bara end­ur­taka sig.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda