Hvernig má komast úr herbergisfélaga-gírnum?

Sambönd missa oft sjarmann við það að búa lengi saman.
Sambönd missa oft sjarmann við það að búa lengi saman. mbl.is/Thinkstockphotos

Þegar fólk hef­ur verið lengi í sam­bandi er hætt við að það upp­lifi sam­lífið líkt og her­berg­is­fé­lag­ar. Jean Smith er mann­fræðing­ur og sér­fræðing­ur í daðri og hef­ur lagt áherslu á að hjálpa fólki að finna aft­ur neist­ann. Hún deil­ir reynslu sinni í pistli á vef­rit­inu The Styl­ist.

„Eft­ir því sem líður lengra á sam­bandið minnk­ar þörf­in til að ganga í aug­un á mak­an­um. Daður­söm skila­boð lúta í lægra haldi fyr­ir snagg­ara­leg og lit­laus skila­boð um að það vanti meiri kló­sett­papp­ír eða hvað þá held­ur. Þá fer fólk sjaldn­ar á stefnu­mót og hang­ir bara í sóf­an­um heima að horfa á Net­flix.“

„Fyrr en var­ir fer fólki að líða eins og vin­um sem deila sam­an íbúð frek­ar en róm­an­tísku pari. Þetta á sér marg­ar út­skýr­ing­ar og er al­geng­ara en halda mætti. Í lang­tíma­sam­bönd­um breyt­ist sýn manns á mak­ann. Hvers­dags­leik­inn fær mann til þess að gleyma af­hverju maður varð hrif­inn af mann­eskj­unni til að byrja með og maður tek­ur þá sem gefn­um hlut.“

„Þegar við erum ein­hleyp þá leggj­um við okk­ur fram með út­litið og skipu­leggj­um spenn­andi hluti sam­an. En með tím­an­um hætt­um við því. Hvað þá ef börn bæt­ast við þá er enn auðveld­ara að missa sjón­ar á sam­band­inu.“

Hvað gerðuð þið á laug­ar­dags­kvöld­um?

„Þetta snýst um hvernig maður ver tíma sín­um. Ég heyri fólk segja að það hætti í sam­band­inu því neist­inn var far­inn. Þá spyr ég á móti, hvað gerðuð þið á laug­ar­dags­kvöld­um? Ef það var bara fyr­ir fram­an sjón­varpið í nátt­föt­un­um þá er ekki að undra að illa hafi farið.“

„Eðli­legt er að ástríðan dofni með tím­an­um en það er mik­il­vægt að muna að það var neist­inn sem dró ykk­ur sam­an til að byrja með. Það er því mik­il­vægt að reyna að halda í hann. Besta leiðin er að halda áfram að daðra.“

„Daður er ekki bara fyr­ir þá sem eru að hefja sam­band. Öll pör ættu að daðra sam­an. Það sýn­ir að þú haf­ir áhuga á mann­eskj­unni og finnst hún æði. Daður leys­ir úr læðingi vellíðun­ar­horm­ón og læt­ur báðum aðilum líða vel. Og þó að það krefj­ist skipu­lags eins og að setja áminn­ingu í sím­ann um að daðra eða kaupa blóm, þá er það þess virði.“

„Það besta við daðrið er að það kem­ur bolt­an­um af stað. Því meira sem maður daðrar því lík­legra er að mak­inn taki und­ir með þér sem fær þér til þess að líða enn bet­ur og þannig hleðst þetta upp. Þetta er eins og að fylla á tank­inn. Þegar tankur­inn er full­ur eru meiri lík­ur á að þið hlustið á hvort annað eða hjálp­ist að með verk­efn­in á heim­il­inu.“

„Það að daðra minn­ir okk­ur á að við erum kyn­ver­ur en líka áhuga­vert og skemmti­legt fólk. Það fær­ir mann sjálfs­ör­yggi.“

Hvernig á að daðra við mak­ann?

  • Nýta sér þekk­ing­una „Að daðra við mak­ann krefst annarr­ar tækni en við ókunn­ug­an á bar. Farðu í föt­in sem þú veist að mak­inn elsk­ar og eldaðu upp­á­halds­mat­inn. Nýttu þér það hversu vel þið þekk­ist. Hvað lík­ar hon­um? Finnst hon­um gott að fá hrós eða vill hann mikla snert­ingu og lík­am­lega nánd? Gæðastund­ir eða ein­hver viðvik?“
  • Búðu til huggu­legt um­hverfi því það skap­ar réttu stemm­ing­una og auðveld­ar allt daður.
  • Ef það er langt síðan þið voruð að daðra þá er mik­il­vægt að velja réttu stund­ina. Ekki yfir upp­vask­inu. Verið bæði af­slöppuð og með hug­ann við annað en verk­efni dags­ins. Farið út í drykk til að létta á and­rúms­loft­inu.
  • Hrósið hvort öðru. Best er að byrja daðri á hrósi og þá er áhrifa­rík­ast að hrósa út­lit­inu og draga fram það sem þér lík­ar í fari þeirra.
  • Grín - það er gott að grín­ast sam­an, það veit­ir vellíðan og er öfl­ug leið til þess að tengj­ast.
  • Opin lík­ams­tján­ing. Þú sýn­ir áhuga með því að beina mjöðmum og öxl­um beint að þeim.
  • Snert­ing. Strjúktu létt yfir hand­ar­bakið eða niður eft­ir bak­inu.
  • At­hygli. Það er auðvelt að láta hug­ann reika á meðan mak­inn er að tala. Að veita hon­um fulla at­hygli er hins veg­ar mjög öfl­ugt tól til þess að gefa til kynna áhuga sinn.
  • Nánd. Að sitja nærri hvort öðru er aug­ljós en áhrifa­rík leið til þess að tengj­ast.
  • Augn­sam­band. Haltu augn­sam­bandi þó það virki kannski full mikið af því góða. Þannig mynd­arðu tengsl. Teldu upp að þrem­ur ef þú ert í vafa um hvað telst hæfi­leg lengd.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda