Hvernig á að stunda skyndikynni án vesens?

Fólk má leika sér.
Fólk má leika sér. Ljósmynd/Thinkstockphotos

Það get­ur verið hollt og gam­an að eiga stund­arkynni án skuld­bind­inga og vænt­inga um að þró­ist í eitt­hvað nán­ara sam­band. Ekki eru all­ir reiðubún­ir í sam­bönd en vilja þó geta stundað kyn­líf reglu­lega. 

Sér­fræðing­ar mæla með því að fólk sé heiðarlegt í sam­skipt­um og leggi til grund­vall­ar ákveðnar regl­ur sem fara ætti eft­ir til þess að tryggja að mál­in flæk­ist ekki og koma í veg fyr­ir ein­hver sitji eft­ir með sárt ennið.

Til þess að koma í veg fyr­ir að maður teng­ist óvart mann­eskj­unni sem maður á stund­arkynni með er hægt að hafa þessi atriði í huga:

  • Hættu að dreyma um hinn eina rétta
  • Vertu með á hreinu hvað þú vilt
  • Hugsaðu vel um þig og eig­in mark­miðum í líf­inu
  • Ræktaðu vin­ina
  • Ekki fara „all in“ í hvert sinn sem ein­hver sýn­ir þér áhuga

Þetta skal leggja til grund­vall­ar í sam­skipt­um við ból­fé­laga eða í skyndikynn­um sem eiga ekki að þró­ast í eitt­hvað meira:

  • Heiðarleiki um það sem þú vilt úr kynn­un­um
  • Ekki velja ein­hvern sem þú gæt­ir fallið fyr­ir
  • Halda öll­um sam­skipt­um í lág­marki. Þetta á við sms og sím­töl. Ef þið eruð hins veg­ar vin­ir sem stundið stund­um kyn­líf sam­an þá má tala við þá eins og aðra vini.
  • Ekki skoða sam­fé­lags­miðla hvors ann­ars.
  • Hitt­ast aðeins einu sinni eða tvisvar í mánuði. Því oft­ar sem þið hitt­ist því meiri lík­ur eru á að þið myndið tengsl.
  • Hitt­ist bara að kvöldi til
  • Segðu að þú vilj­ir hvorki greiða né gjaf­ir
  • Ekki kúra eft­ir kyn­líf
  • Ekki verja öll­um deg­in­um sam­an
  • Ekki gista
  • Farið í gegn­um regl­urn­ar þ.e. hversu oft á að hitt­ast, hvernig sam­skipt­um sé háttað, má gista, má sofa hjá öðrum?
  • Ekki deila of miklu um þig. Haltu þessu við svefn­her­bergið. Ekki senda þeim góða nótt eða góðan dag­inn sms.
  • Haltu vænt­ing­um í lág­marki. Það má t.d. ekki fara í fýlu ef hinn aðil­inn svar­ar ekki strax eða er ekki til taks. Beindu þá sjón­um að ein­hverj­um öðrum.
  • Ekki kynna fyr­ir fjöl­skyldu eða vin­um - aug­ljós­lega!
  • Vertu með fleiri í tak­inu en vertu heiðarleg/​ur með það.
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda