Hárgreiðslumaðurinn Magnús Andri Ólafsson og ofurskvísan Marta Buchanevic eru nýtt ofurpar.
Magnús Andri er 25 ára og er einn af eigendum hárgreiðslustofunnar Studio 220 í Hafnarfirði, þar sem hann starfar undir listamannsnafninu Slakur Barber. Hann er sonur tískudrottningarinnar Andreu Magnúsdóttur, hönnuðarins á bak við fatamerkið Andrea by Andrea, og eiginmanns hennar Ólafs Ólasonar.
Marta er 23 ára og er sannkölluð ofurskvísa á samfélagsmiðlum með rúmlega 4.000 fylgjendur á Instagram, þar sem hún sýnir frá ferðalögum og töff klæðaburði. Marta stundar muay thai og hefur áður keppt á alþjóðlegum viðburðum í bardagaíþróttinni, auk þess að búa yfir bakgrunni í frjálsum íþróttum.
Sést hefur til þeirra á samfélagsmiðlum upp á síðkastið og Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með ástina.