TikTok-æðið „Date With Me“ eða „stefnumót með mér“ hefur farið öfugt ofan í margan netverjann. Líkt og tískubylgjan „Get Ready With Me“ og „Come With Me“, snýst þetta um að sá sem býr til efnið fyrir TikTok „tekur“ fylgjendurna með sér, þ.e. þeir fá að fylgjast með stafrænt.
Myndskeiðin sýna ýmist hvernig viðkomandi hefur sig til fyrir stefnumót, klippur frá stefnumótinu sjálfu, greinargerð eftir stefnumótið o.fl. Jafnvel gerast sumir svo djarfir að sýna frá stefnumótinu í lifandi streymi.
En af hverju er fólk svo hrifið af þessu fyrirbrigði?
Stefnumótaþjálfarinn Grace Lee segir að freistandi sé bæði fyrir fylgjendur og þá sem búa til „Date With Me“-efnið að upplifa stefnumótið og undirbúninginn saman því þeim finnist þeir síður einmana. „Á yfirborðinu geta stefnumót virst skemmtileg en fyrir marga eru þau skelfileg. Að deila reynslunni á þennan hátt, sérstaklega þeirri slæmu, getur mildað höggið.“
Ef stefnumótið gengur illa þá hefur viðkomandi a.m.k tekist að búa til efni úr því fyrir TikTok, segir sálfræðingurinn Sarah Hensley. Og það er ástæða þess að mörgum finnst þessi tíska vera fyrir neðan allar hellur, þ.e. hugmyndin um að fólk sé að taka nána, persónulega, viðkvæma reynslu og nýta hana fyrir efni á samfélagsmiðlum.
Þegar allt er gert fyrir smellina líði tengslin fyrir smellina og þegar fjöldi áhorfa er aðalatriðið er hættan að einlægnin hverfi og samskiptin verði yfirborðskennd. Þótt fólk láti sem það sé að koma hreint fram og sé einlægt í því sem það geri þá setji það samt upp leikrit fyrir fylgjendur sína.