Lilja Dögg fer fögrum orðum um eiginmanninn

Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Magnús Óskar Hafsteinsson.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Magnús Óskar Hafsteinsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lilja Dögg Al­freðsdótt­ir vara­formaður Fram­sókn­ar fer ekki leynt með það hver á af­mæli í dag. Eig­inmaður henn­ar, Magnús Óskar Haf­steins­son hag­fræðing­ur, fagn­ar fimm­tugsaf­mæli sínu í dag og birti Lilja fal­lega færslu á In­sta­gram-síðu sinni í til­efni dags­ins.

„Elsku Maggi minn fagn­ar stóraf­mæli í dag, 50 ára!

Maggi gleður okk­ur alla daga, er fynd­inn og hugs­ar ein­stak­lega vel um fjöl­skyld­una sína! Hér er hann í sveit­inni sinni, Öræf­un­um, með Hvanna­dals­hnjúk­inn í bak­sýn. Þarna líður sveitastrákn­um, Magga, best á slóðum forfeðra sinna og á ein­um allra feg­ursta stað lands­ins! Til ham­ingju með dag­inn þinn, Maggi! Við elsk­um þig!” skrif­ar Lilja Dögg við mynd af eig­in­mann­in­um.

Lilja Dögg og Magnús Óskar hafa verið sam­an um ára­bil en þau fundu ást­ina í bíó. Hjón­in eiga tvö börn, Ey­stein Al­freð og Sig­nýju Steinþóru.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda