Fyrnast skattaskuldir?

Einar Hugi Bjarnason, lögmaður á Lögfræðistofu Reykjavíkur, svarar spurningum lesenda …
Einar Hugi Bjarnason, lögmaður á Lögfræðistofu Reykjavíkur, svarar spurningum lesenda Smartlands. mbl.is/Eyþór Árnason

Ein­ar Hugi Bjarna­son, lögmaður á Lög­fræðistofu Reykja­vík­ur, svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hann spurn­ingu frá manni sem spyr um fyrn­ing­ar­tíma virðis­auka­skatts­skuld­ar. 

Heill og sæll. 

Hver er fyrn­ing­ar­tím­inn á vsk skuld þar sem viðkom­andi starfaði sem verktaki á eig­in kenni­tölu og lenti í van­skil­um við RSK sök­um heilsu­brests? Það eru kom­in tæp tíu ár síðan og RSK er enn að senda viðkom­andi rukk­un. 

Kveðja, 

LK

Góðan dag,

Skatta­laga­brot fyrn­ast al­mennt á sex árum. Séu brot eldri en sex ára göm­ul er hvorki hægt að krefja fram­telj­anda um það fé sem ekki var talið fram né dæma fram­telj­anda til refs­ing­ar. Hins veg­ar geta um­fangs­mik­il skatta­laga­brot fallið und­ir al­menn hegn­ing­ar­lög og þá varða brot­in allt að tíu ára fang­elsi og fyrn­ing­ar­frest­ur­inn er tíu ár. Brot verða þá að vera sam­kynja eða hafa staðið yfir í lang­an tíma.

Rétt er að taka fram að Skatt­ur­inn get­ur rofið fyrn­ingu með ýms­um hætti svo sem með mót­töku fjár­náms­beiðni hjá sýslu­manni, með nauðung­ar­sölu­beiðni, beiðni um gjaldþrot, kröf­u­lýs­ingu í þrota­bú gjald­anda, mál­sókn o.fl. Ef fyrn­ingu er slitið byrj­ar nýr fyrn­ing­ar­tími að líða og kraf­an er áfram lögvar­in.

Bestu kveðjur,

Ein­ar Hugi Bjarna­son hæsta­rétt­ar­lögmaður. 

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Ein­ari Huga og öðrum lög­mönn­um á Lög­fræðistofu Reykja­vík­ur spurn­ingu HÉR. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda