Hrúturinn: Vinir þínir dýrka þig

Elsku Hrút­ur­inn minn,

það er af­skap­lega mik­il­vægt að þú skoðir sann­girni á þess­um dá­sam­lega tíma sem þú ert að fara inn. Ef þú iðkar hana ekki þá lend­irðu í holskeflu af veseni. Leitaðu þér ráða, jafn­vel hjá fleir­um en ein­um. Þá breyt­ist lífs­formið þitt.

All­ur sann­leik­ur sem þú þarft að þekkja eða vita um flýt­ur á yf­ir­borðinu. Ekki dæma þó að aðrir hafi að ein­hverju leyti verið svik­ul­ir. Skoðaðu frek­ar að setja þig í þeirra spor ef þú get­ur, að ganga meðal­veg­inn er lang­best í stöðunni. Farðu held­ur ekki of geist í lífs­ins lystisemd­um eins og að nota hug­breyt­andi efni, sem er alltaf skamm­góður verm­ir og ávís­un á verri líðan.

Síðustu tíu daga mánaðar­ins sérðu að hlut­irn­ir gangi upp og þú hef­ur fundið síðasta orðið í kross­gát­unni. Al­veg eins og þú ert krefj­andi, þá ertu viðkæm­ur. Þú reyn­ir með öll­um ráðum að fela það. Ég á að benda þér á það að þú átt sæg af vin­um sem hrein­lega dýrka þig og þetta er sum­ar vinátt­unn­ar og ástar­inn­ar. Í dugnaði þínum finn­urðu pen­inga­legt frelsi og átt eft­ir að fara á staði sem þú hef­ur ekki komið á áður. Þú átt eft­ir að kynn­ast nýju fólki sem hef­ur mik­il áhrif á framtíð þína, þótt þú sjá­ir það ekki strax.

Ég dreg fyr­ir þig tvö spil og það fyrra ber töl­una fjóra sem er tala Hrúts­ins. Hún seg­ir að þrjósk­an geti bæði komið þér langt, en líka stöðvað þig í því að það séu fleiri leiðir fær­ar. Hitt spilið seg­ir að þú þurf­ir að treysta fólki bet­ur ef eitt­hvað er að angra. Þú átt það til harðlæst­ur eins og lokuð bók.

Nýttu þinn skap­andi og skemmti­lega kraft, skoðaðu þitt ríka inn­sæi og segðu það með ljúf­um tóni sem þú berst fyr­ir. Þú átt eft­ir að hjálpa svo mörg­um sem ná­lægt þér eru, því þú hef­ur þetta hlýja hjarta­lag sem þarf.

Knús og koss­ar,

Sigga Kling

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda